Fullkomin förðun á 10 mínútum

Falleg förðun þarf ekki alltaf að taka langan tíma.
Falleg förðun þarf ekki alltaf að taka langan tíma. Skjáskot/Instagram

Fyrir ekki svo löngu var ég stödd erlendis á ráðstefnu þar sem ég þurfti að hafa útlitið í lagi fjóra daga í röð frá kl. 9 á morgnana til kl. 22 á kvöldin. Þar sem ég verð seint þekkt fyrir að vera A-manneskja, sem myndi vakna eldsnemma til að líta sem best út, þurfti ég að ná að framkalla fullkomna förðun á sem skemmstum tíma til að hámarka svefntímann. Yfirleitt tekur það mig um tvo klukkutíma að framkalla fullkomna förðun (stefnumótamarkaðurinn er dauður svo ég leyfi mér að uppljóstra slíkum leyndarmálum núna) svo ég ákvað að stytta það ferli um 110 mínútur. 

Þetta tókst mér en hvert var leynivopnið? Púðurfarði.

Elsku púðurfarðinn hefur fengið svolítið slæmt orð á sig síðustu árin og á tímabili var ástandið svo slæmt að ég þorði ekki að láta sjá mig með púðurfarða í töskunni. Nú er þó öldin önnur því ný kynslóð af púðurförðum hefur litið dagsins ljós og gera þeir húðina fullkomna á skotstundu.

Staðreyndin er þó sú að þeir eru meira þurrkandi en fljótandi farðar en með því að bera vel af andlitskremi á húðina fyrst og nota svo nærandi farðagrunn þá var þetta vandamál úr sögunni. Ég notaði True Skin Radiant Priming Serum frá ILIA en ég er mjög hrifin af þessari formúlu. Hún er án óæskilegra aukaefna, sílikonlaus og gerir húðina mun sléttari og minnkar svitaholur. Allur farði sem fer svo ofan á helst mun betur yfir daginn.

ILIA True Skin Radiant Priming Serum, 7.990 kr. (Nola.is)
ILIA True Skin Radiant Priming Serum, 7.990 kr. (Nola.is)

Næst bar ég hyljara undir augun og aðeins yfir T-svæðið til að lýsa það upp. Sjálf nota ég alltaf Radiant Creamy Concealer frá NARS eða True Skin Serum Concealer frá ILIA

NARS Radiant Creamy Concealer, 4.675 kr. (CultBeauty.co.uk)
NARS Radiant Creamy Concealer, 4.675 kr. (CultBeauty.co.uk)

Hinn magnaði púðurfarði sem ég notaði er glænýr á markaðnum og nefnist Synchro Skin Self-Refreshing Custom Finish Powder Foundation frá Shiseido. Púðuragnirnar eru svo fínmalaðar að áferðin verður nánast kremkennd. Formúlan ber með sér að vera næsta kynslóð af púðurfarða þar sem ActiveForce-tækni heldur húðfitu og svita í skefjum, Responsive Sensory-tækni aðlagar formúluna að ástandi húðarinnar og eins býr formúlan yfir litaleiðréttandi eiginleikum. Þessi púðurfarði er langvarandi og mér fannst hann gefa mér góða miðlungsþekju. Hægt er að setja annað lag af honum yfir húðina til að fá aukna þekju en yfirleitt fannst mér það ekki þurfa.

Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Custom Finish Powder Foundation, 7.599 kr.
Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Custom Finish Powder Foundation, 7.599 kr.

Til að spara pláss í töskunni og tíma þá notaði ég Studio Fix Sculpt & Shape Contour Palette frá MAC til að móta andlitið en einnig sem bronser og augnskugga. Þetta sparaði mikinn tíma því þessi palletta er skotheld og ég elska svona fjölþættar snyrtivörur. Eins nota ég þessa pallettu til að móta augabrúnirnar.

MAC Studio Fix Sculpt & Shape Contour Palette, 10.590 kr.
MAC Studio Fix Sculpt & Shape Contour Palette, 10.590 kr.

Til að klára augnförðunina notaði ég Woody Eye Liner frá GOSH í litnum 002 Mahogany. Þessi umhverfisvæni, vegan og ofnæmisprófaði augnblýantur hefur á stuttum tíma orðið einn af mínum uppáhalds. Einn mest notaði maskarinn minn, Lash Volumiser 38°C frá Sensai, var svo að sjálfsögðu notaður á augnhárin. Báðar þessar vörur eru langvarandi og entust allan daginn á augunum án þess að hreyfast.

GOSH Woody Eye Liner (002 Mahogany), 1.299 kr.
GOSH Woody Eye Liner (002 Mahogany), 1.299 kr.
Sensai Lash Volumiser 38C, 4.800 kr. (Beautybox.is)
Sensai Lash Volumiser 38C, 4.800 kr. (Beautybox.is)

Að lokum setti ég Mineralize Blush frá MAC í litnum Like Me, Love Me á kinnarnar, aðeins yfir augnlokin og yfir varasalvann á vörunum. Þarna var ég komin með smá mónókróm-förðun, sem ég hef verið mjög hrifin af undanfarið. 

MAC Mineralize Blush í litnum Like Me, Love Me, 5.290 …
MAC Mineralize Blush í litnum Like Me, Love Me, 5.290 kr.

Vertu með á Instagram:
@Snyrtipenninn 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál