Tískudrottning vekur athygli í joggingbuxum

Anna Wintour í rauðum joggingsbuxum.
Anna Wintour í rauðum joggingsbuxum. skjáskot/Instagram

Anna Wintour, ritstjóri tískutímaritsins Vogue og ein áhrifamesta kona heims, vakti athygli á dögunum þegar hún birti mynd af sér á Instagram í rauðum joggingbuxum. 

Wintour er ævinlega vel til fara og veit nákvæmlega hvað er í tísku hverju sinni, enda ritstjóri stærsta tímarits í heimi. Buxurnar vöktu ekki síst athygli þar sem Wintour hefur áður sagt í viðtali að hún klæddist aldrei joggingfötum.

Hinn óformlegi klæðaburður ritstjórans var í takt við tilkynninguna sem fylgdi myndinni en Vogue stendur fyrir fjögurra daga viðburði á fjarfundarforritinu Zoom þar sem rætt verður um framtíð tískunnar og hvað framtíðin ber í skauti sér. 

Wintour óaðfinnanleg á Met Gala í fyrra.
Wintour óaðfinnanleg á Met Gala í fyrra. AFP
Á galakvöldi í New York í febrúar síðastliðinn.
Á galakvöldi í New York í febrúar síðastliðinn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál