Steldu stíl Kára Stefánssonar

Kári Stefánsson í fötum úr gallaefni.
Kári Stefánsson í fötum úr gallaefni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, fer sínar eigin leiðir í leik og starfi og það sama má segja um fatastíl hans. Kári segir það sem honum finnst þegar honum hentar og klæðir sig á sama hátt. Smartland skoðaði fatastíl Kára en ljóst er að hann fer ekki eftir óskrifuðum reglum um klæðnað þegar hann klæðir sig. 

Klæðir sig eins og unglingur

Á miðvikudaginn mætti Kári í frægt sjónvarpsviðtal í gallaskyrtu frá Levi's. Á fimmtudaginn mætti Kári á fund í Íslenskri erfðagreiningu í gallajakka yfir sams konar skyrtu. Sumum þótti þetta djörf samsetning en það er ekki fyrir alla að klæðast gallaefni við gallaefni eða „denim on denim“ eins og það er kallað. Kári var í þriðju gallaefnisflíkinni við en hann var í svörtum gallabuxum. Svartar gallabuxur virðast reyndar vera í miklu uppáhaldi hjá Kára. 

Kári Stefánsson í gallaskyrtu, gallajakka og gallabuxum.
Kári Stefánsson í gallaskyrtu, gallajakka og gallabuxum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kári er kominn yfir sjötugt en er ekki óvanur að klæða sig eins og unglingur. Hann hefur meðal annars sést á hátíðarfrumsýningu í Þjóðleikhúsinu í hettupeysu á meðan aðrir gestir kunnu ekki við annað en að mæta í jakkafötum og jólakjólum. 

Ekkert bindi

Þegar myndir af Kára í myndasafni Morgunblaðsins eru skoðaðar kemur í ljós að Kári klæðist stundum jakkafötum eða jakka og svörtum gallabuxum við. Hann er oftast í bol innanundir jakka og þá helst svörtum.

Kári Stefánsson klæðist gjarnan svörtum bolum.
Kári Stefánsson klæðist gjarnan svörtum bolum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Bindi er eitthvað sem Kári er afar sjaldan með.

Kári Stefánsson í jakka og skyrtu en ekki með bindi.
Kári Stefánsson í jakka og skyrtu en ekki með bindi. mbl.is/Hari

Það þarf að leita mörg ár aftur í tímann til að finna Kára með bindi á mynd í myndasafni Morgunblaðsins.

Langt er síðan Kári Stefánsson var síðast myndaður með bindi.
Langt er síðan Kári Stefánsson var síðast myndaður með bindi. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Það er langt síðan Kári byrjaði að vinna með að klæða sig í svartan bol undir fínan jakkafatajakka. 

Kári Stefánsson í jakka og svörtum bol.
Kári Stefánsson í jakka og svörtum bol. mbl.is/Brynjar Gauti


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál