Ofurfyrirsætan Paulina Porizkova birti nýverið ljósmynd af sér ómálaðri á Instagram þar sem hún sýnir fylgjendum sínum hvernig hún lítur í raun og veru út á morgnanna.
Porizkova er 55 ára að aldri og þykir ein glæsilegasta kona veraldar. Það sem ljósmyndin sýnir hins vegar er náttúrulegt útlit sem er fallegt og einfalt. Hún hefur ekki látið eiga við sig hjá lýtalækni og segir að hún eins og aðrar konur vildi stundum líta öðruvísi út.