Af hverju ekki að leggja meira í matinn en skrautið?

Árdís Eva Bragadóttir og Sóley Rós Þórðardóttir eru góðar að …
Árdís Eva Bragadóttir og Sóley Rós Þórðardóttir eru góðar að gera veislumat. Þær eru eigendur Moon veitinga. Ljósmynd/Bragi Kort

Þær Árdís og Sóley kynntust á námsárum sínum fyrst árið 2013. Þær hafa allar götur síðan verið afar samrýndar. Þær luku báðar námssamningum sínum á Vox. Héldu út á vinnumarkaðinn og öfluðu sér upplýsinga og luku einnig báðar meistaranámi í matreiðslu samhliða vinnu. Síðla ársins 2019 stofnuðu þær saman veislufyrirtækið Moon.

„Draumurinn var alltaf að byggja upp okkar eigin rekstur, og ákváðum einn daginn að kýla á þetta. Margir möguleika voru í boði þegar kom að því að velja í hvaða átt við ættum að fara. Hvers konar fyrirtæki við vildum koma með á markaðinn.

Vegna mikils áhuga okkar á gæða sælkeravörum ásamt vönduðum gjafaumbúðum langaði okkur að leggja okkar að mörkum og koma með vandaðar og fjölbreyttar sælkeravörur á markað sem framleiddar væru af okkur. Ásamt því höfum við alltaf haft gaman af smáréttum, og passar það fullkomlega við að okkar mati.“

Árdís og Sóley leggja mikinn metnað í útlit á veitingunum.
Árdís og Sóley leggja mikinn metnað í útlit á veitingunum. Ljósmynd/Bragi Kort

Ástandið sett strik í reikninginn

Stór hluti tímans að undanförnu hefur farið í uppbyggingu og skipulag á rekstri Moon veitinga. En þær stofnuðu fyrirtækið í lok ársins 2019.

„Við leggjum mikið upp úr faglegri en persónulegri þjónustu og fer því mikill tími og metnaður í til dæmis myndatökur fyrir auglýsingar, samfélagsmiðla og slíka vinnu.“

Ástandið hefur sett sinn strik í reikninginn, þar sem engar veislur hafa verið á meðan á samkomubanni stóð.

„Við höfum þó haft opið fyrir pantanir á sælkeravörum okkar og boðið viðskiptavinum okkar upp á fría heimsendingu. Fólk hefur verið að nýta sér þessa þjónustu til að mynda til að koma fjölskyldu og sínum nánustu á óvart. Vinsælt hefur verið að fá okkur til að sendast með gjafir óvænt heim að dyrum, og hefur fólk alltaf jafn mikið gaman af því. Við höfum einnig nýtt þessa tíma fyrir breytingar á matseðli þar og meðal annars bætt nýjum réttum við. Matseðillinn okkar snýr að mestu leyti að pinna- og smáréttaveislum sem henta vel við ýmis tækifæri. Það getur verið afar skemmtilegt að brjóta upp fyrirkomulagið og bjóða gestum sínum upp á flotta og vandaða smárétti, andinn breytist úr formlegum yfir í léttari og veitir það gestgjöfum meiri tíma með gestum sínum.“

Þær vilja láta veitingarnar njóta sín sem best.
Þær vilja láta veitingarnar njóta sín sem best. Ljósmynd/Bragi Kort

Gott að reikna vel út magn fyrir veisluna

Árdís og Sóley hafa góða reynslu þegar kemur að veislum. Þær segja mikilvægt að hafa í huga tímasetningu á veisluhöldunum, en þær ákvarða viðeigandi veitingar fyrir veisluna.

„Stór munur er á veislum sem haldnar eru á mismunandi tíma dagsins. Veisluhöld fyrri part dags eru oftar með léttara sniðinu, boðið er fremur sjaldan upp á þungan mat og eru því að mestu leyti sætari veitingar í boði. Veisluhöld seinni part dags eru hins vegar með allt öðru sniði og er mikilvægt að gestgjafar hafi í huga að þá þurfi meira af veitingum. Eins og áður kom fram er það tímasetningin sem ákvarðar viðeigandi veitingar fyrir þína veislu. Því má segja að við veisluhöld seinnipart eins og á matmálstíma megi gera ráð fyrir að veislugestir vilji borða sig sadda. Getur þar af leiðandi staðsetning á veisluhöldum skipt gífurlega miklu máli. Ef heitar veitingar eru valdar er nauðsynlegt að réttur eldhúsbúnaður sé við höndina, svo sem ofn af einhverju tagi. Gott er að fá faglega ráðgjöf sem við feitum til að sporna við matarsóun.“

Auðséð er að þær leggja mikið upp úr fagurfræði matarins.

„Við leggjum mikinn metnað í útlit á veitingunum. Veitingarnar eru bornar fram á einsaklega flottum borðbúnaði. Hægt er að útskýra þemað sem „rustic“ stíl en þó stílhreinan.“

Pinnamatur og nettir hamborgarar eru vinsælar veitingar í veislum.
Pinnamatur og nettir hamborgarar eru vinsælar veitingar í veislum. Ljósmynd/Bragi Kort

Gott að huga vel að afgöngum

Eigið þið góð hagnýt ráð þegar kemur að mat sem verður afgangs í veislum?

„Það er víst ekki alveg hægt að forðast afganga. Gott ráð er að huga að geymsluþoli á þeim mat sem verður afgangs og athuga hvað hægt er að frysta eða geyma í kæli, þar með passa að innsigla allar þær matvörur/afganga vel fyrir þess konar geymslu. Annað ráð væri að bjóða nánum fjölskyldu-meðlimum úr veisluhöldum að taka með sér heim einhverja af afgöngunum, vera þá tilbúin með einhvers konar bakka sem hægt væri fyrir aðra að taka með sér heim. Einnig væri möguleiki að fara með vel með farna afganga, þar á meðal pinnarétti, súpur og ýmsa rétti sem hægt væri að hita aftur, til góðgerðarsamtaka eða á elliheimili og þar með gleðja aðra.“

Hvers konar skraut finnst ykkur fallegt að nota á kræsingarnar ykkar?

„Við viljum láta veitingarnar njóta sín sem best. Því finnst okkur vera óþarfi að fjárfesta stórum upphæðum í skreytingar sem ekki eru fyrir hversdags notkun.

Þrátt fyrir að skreytingar geti að mörgu leyti verið flottar á veisluborðin höfum við fremur mælt með því við viðskiptavini okkar að bjóða veislugestum sínum upp á gæða veitingar.“

Bæði börn og fullorðnir kunna að meta góða hamborgara.
Bæði börn og fullorðnir kunna að meta góða hamborgara. Ljósmynd/Bragi Kort
Það þarf ekki mikið af skrauti til að gera veisluna …
Það þarf ekki mikið af skrauti til að gera veisluna fallega. Ljósmynd/Bragi Kort
Franskar makrónur í formi kransaköku.
Franskar makrónur í formi kransaköku. Ljósmynd/Bragi Kort
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál