Hjón á níræðisaldri í Taívan hafa heldur betur slegið í gegn á samfélagsmiðlum að undanförnu. Hjónin reka saman efnalaug og á myndum á Instagram sitja þau fyrir eins og alvörufyrirsætur í fötum sem kúnnar þeirra hafa ekki sótt.
„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að svona margir myndu vilja skoða myndir af mér á þessum aldri,“ sagði hin 84 ára gamla Hsu Hsiu-e í viðtali á vef BBC. Hsiu-e og eiginmaður hennar, Chang Wan-ji, sem er 83 ára, eru nú komin með yfir hálfa milljón fylgjenda á Instagram.
Wan-ji hóf starfsemi þegar hann var fjórtán ára. Í gegnum áratugina hafa margir gleymt að sækja föt sín í hreinsun en það var barnabarn þeirra, Reef Chang, sem sannfærði ömmu sína og afa um að sitja fyrir í fötunum úr óskilamununum. Chang segir að markmiðið hafi ekki verið að gera ömmu sína og afa fræg. Hann vildi einfaldlega lífga upp á tilveru þeirra.
„Viðskiptin eru ekki alltaf mikil. Þau áttu það til að sofna í efnalauginni og þau voru ekki mjög hress. Ég hugsaði því með mér, þar sem fjölskyldan á þessi föt, ég get minnt fólk á að sækja fötin og minnti ömmu mína og afa að líf þeirra getur enn verið skemmtilegt á þessum aldri,“ sagði barnabarnið og fékk hjálp frá vinum með gott tískuvit til þess að setja saman fötin.
„Klæddur svona líður mér eins og ég sé 30 árum yngri,“ sagði afinn Wan-ji.
Myndirnar má skoða hér fyrir neðan en þær líta út eins og í alvörutískutímaritum.