Farðaðu þig eins og Sharon Stone í Basic Instinct

Leikkonan Sharon Stone varð ein helsta tískufyrirmynd heims þegar hún lék í myndinni Basic Instinct á móti leikaranum Michael Douglas. Myndin, sem er erótískur spennutryllir, var frumsýnd í mars 1992 og fékk leikkonan Golden Globe-tilnefningu fyrir leik sinni í henni. 

Hin 15 ára gamla ég sá myndina árið sem hún kom út en eitthvað hafði söguþráðurinn skolast til.

Að sjá myndina 27 árum seinna var upplifun. Það sem stóð kannski upp úr, fyrir utan hvað það voru miklir straumar á milli Michaels Douglas og Sharon Stone, var hvað myndin eldist vel tískulega séð og þá er ég ekki bara að tala um föt heldur einnig förðun. Þessi mynd er svo miklu stærri en mig minnti.

Tískustraumar 1992 minna töluvert á tísku dagsins í dag og var athyglisvert að sjá hvað förðun Stone passar vel inn í hausttískuna 2020. Hún var með frekar matta áferð á andlitinu, sem var ekki mikið skyggt. Húðin var vel nærð og mikil áhersla lögð á náttúrulegar augabrúnir. Förðunarmeistari myndarinnar var ekki að vinna með kolsvartar augabrúnir sem líta út fyrir að hafa verið stimplaðar á andlitið eins og hafa verið svo vinsælar hérlendis síðustu ár, heldur náttúrulegar brúnir sem gera konur svo heillandi. Augabrúnirnar hafa sjálfsagt verið eitthvað plokkaðar og svo var hæfilega mikill litur settur í þær. Þetta má auðveldlega framkvæma með Tinted Brow Gel – Granite frá Anastasia Beverly Hills og er það borið létt í augabrúnirnar og þær mótaðar.

Augnlokin sjálf voru máluð með einlitum augnskugga í beige-litum tón. Ekkert glimmer, bara matt. Örlítill brúnn blýantur var settur alveg meðfram augnhárunum en þó varla þannig að hægt væri að sjá skýra línu. Við þessa augnförðun var hún með maskara til að skerpa augnlínuna, ekki hnausþykk gerviaugnhár. Varirnar voru mótaðar með bleikbrúnum lit og voru þær mattar í sumum senum.

Til þess að ná fram þessu útliti er mikilvægt að þrífa húðina vel. Þú gætir til dæmis notað andlitssápuna frá Skin Regimen og þvegið andlitið tvisvar og sett svo Enzymatic Powder frá sama merki en það er sett í lófann og svo er örlitlu vatni bætt út í og andlitið þvegið mjög vel á eftir. Þá væri sniðugt að setja 1.85 HA Booster frá Skin Regimen á húðina til að fá mjög mikinn raka. Til þess að fullkomna raka húðarinnar er gott að bera á sig hollywoodkremið GLAMGLOW  MOISTURETRIP™ Omega Rich Face Moisturizer.

Næst myndir þú setja á þig nýjasta farðann frá Chanel, Les Beiges Teint Belle Mine Naturelle. Hann gefur fallega og náttúrulega áferð og heilbrigðan ljóma án þess að ljóminn verði of mikill. Hægt er að bera farðann á andlitið með förðunarbursta eða með fingrunum ef þú ert sú týpa (bara muna að vera búin að spritta hendurnar vel áður). Þessi farði hylur allt sem þú vilt að hann hylji án þess að setja grímu á andlitið. Þegar það er búið geturðu dregið fram augnskuggapallettu frá Chanel og borið jafnt yfir augnlokið. Því næst getur þú maskarað augnhárin með nýja maskaranum frá Guerlain, MAD EYES, sem gefur augnhárunum mikla fyllingu og lengir augnhárin án þess að klessa þau. Formúlan inniheldur nærandi efni sem þétta og lengja augnhárin líkt og serum og er sjáanlegur munur á fjórum vikum.

Til þess að fullkomna útlitið skaltu setja á þig varalitablýant í sama lit og varirnar og setja svo gloss frá DIOR númer 630 yfir varirnar. Þegar förðunin er orðin alveg upp á tíu gætirðu klætt þig í ljósbrúnar þröngar buxur með reiðbuxnasniði, farið í bol í sama lit, sett á þig belti og í hnésíða peysu yfir. Nú eða látið sérsauma á þig hvítan ermalausan stuttan kjól með standkraga og hætt að ganga í undirfötum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál