Það reynir á fólk um þessar mundir og það hefur aldrei verið mikilvægara að fara úr náttfötunum og lifa borgaralegu lífi þótt fólk sé að vinna heima hjá sér. Sumir fá kannski smá innblástur af því að horfa á Netflix en það er ekki nóg. Fólk þarf líka frískt loft og við þurfum að muna að náttföt draga úr okkur alla orku.
Það gerðist þó eitt í liðinni viku sem vakti okkur í minni deild aðeins til umhugsunar. Einn daginn kom í ljós að samstarfskona okkar hafði ekki farið út úr húsi í þrjá daga og svo var hárburstinn hennar týndur sem gerði það að verkum að hún hafði ekki greitt sér í nokkra daga. Ef við hefðum ekki verið á fjarfundi hefði enginn verið meðvitaður um að ástandið væri eins og það var. Það er kannski ekki heimsendir ef einhver fer ekki út úr húsi í þrjá daga og greiðir sér ekki en það er ekki gott ef það ástand er viðvarandi. Við rákum hana út í göngutúr og sögðum að hún yrði að fá frískt loft. Daginn eftir tók hún okkur í bakaríið þegar hún mætti spariklædd á fjarfundinn, með árshátíðargreiðslu, varalit og var meira að segja í appelsínugulum háhæluðum skóm til að toppa stemninguna. Eftir þetta ákváðum við að klæða okkur upp á fyrir hvern fjarfund.
Nú er bara spurning hvort við verðum framvegis eins og Emily in Paris, sem allir eru að horfa á núna á Netflix, eða sparidruslan í The Duchess, sem leikin er af Katherine Ryan. Emily in Paris er með litríkan og skemmtilegan fatastíl sem við hérna á hjara veraldar ættum að tileinka okkur. Í stað þess að vera berleggjaðar getum við farið í ullargammósíur undir stuttu pilsin. Svo þurfum við að muna að krulla á okkur hárið á hverjum degi en eins og helstu krullusérfræðingar landsins vita þá tekur það ekki nema fimm mínútur ef við erum með almennilegt krullujárn.
Svo getum við tekið sparidrusluna í The Duchess okkur til fyrirmyndar en fatastíll hennar er ævintýralegur og sérlega glansandi og glyðrulegur. Það kemur kannski ekki á óvart því fyrra verkefni búningahönnuðarins var að gera búninga fyrir Gossip Girl.
Hvernig sem þú ákveður að tækla veiruna og heimavinnuna þá skiptir máli að halda áfram að vera til og við þurfum að muna að rannsóknir sýna að fólk er glaðara ef það hugsar vel um sig. Það skiptir máli að hreyfa sig, klæða sig fallega, hugsa vel um húðina og hárið og halda áfram að lifa. Það getur enginn ákveðið nema við sjálf hvort við ætlum að lifa í ljósinu eða myrkrinu. Þeir sem velja ljósið fara úr náttfötunum og setja í sig krullur!
Ef þú vilt vera með í spariátakinu getur þú taggað @smartlandmortumariu á Instagram og sett #spariföt. Einn heppinn lesandi verður dreginn út og getur unnið 100 þúsund krónur í Mathilda í Kringlunni.