Fyrr á þessu ári gaf Bobbi Brown út fyrsta fljótandi farðann sem fær púðuráferð eftir að hann er settur á andlitið, Bobbi Brown Skin Long-Wear Fluid Powder Foundation. Farðinn er einstaklega spennandi því hann gefur þessa möttu áferð sem mjög margir leita að. Upp á síðkastið hafa farðar með miklum ljóma verið gríðarlega vinsælir en þessi farði er algjör andstæða.
Farðinn er hinn fullkomni farði fyrir þá sem eru með olíukennda húð því hann þurrkar upp alla aukaolíu. Hann er mjög fljótandi í túpunni og maður verður að hrista hana áður en maður byrjar til að blanda öllum innihaldsefnunum saman. Það má nota bæði bursta og svamp í farðann.
Þar sem farðinn tekur á sig púðuráferð er ekki nauðsynlegt að setja hann með púðri eftir á. Það sem er einnig gott að hafa í huga er að best er að nota aðrar púðurvörur með honum. Þá erum við að tala um kinnalit, skyggingu, ljómapúður og sólarpúður allt í púðurformi.
Farðinn er með létta til meðalþekju og því hinn fullkomni létti farði. Farðinn á það til að þurrka húðina smá upp svo það er nauðsynlegt að bera á sig góðan rakagefandi farðagrunn (e. primer) fyrir. Hann er líka fljótur að þorna svo það má ekki dunda sér of mikið við að setja hann á sig.
Helstu upplýsingar:
28 litatónar
Létt til meðalþekja
SPF 20
Muna að hrista túpuna vel fyrir notkun
Smitast ekki í föt