Ljómandi húð, skærrauðar varir og seventís-föt

Helga Kristjánsdóttir ritstjóri HÉR ER sem er lífstílsvefur Smáralindar.
Helga Kristjánsdóttir ritstjóri HÉR ER sem er lífstílsvefur Smáralindar.

Helga Kristjáns, ritstjóri HÉR ER sem er tísku- og lífsstílsvefur Smáralindar og samfélagsmiðlari verslunarmiðstöðvarinnar, veit nákvæmlega hvernig hún ætlar að farða sig þetta haustið. Hún er förðunarfræðingur að mennt með yfir tíu ára reynslu úr tískuheiminum þar sem hún hefur starfað sem stílisti, förðunarfræðingur og blaðamaður. 

Hvað finnst þér einkenna förðunartískuna þetta haustið?

„Hausttískan í ár var kynnt rétt fyrir heimsfaraldurinn og í því ljósi er áhugavert að stúdera hana. Að vanda sáum við glimmer og glans, skæra liti og ýmislegt listrænt á tískusýningarpöllunum en það má segja að allt sé leyfilegt og allar reglur megi brjóta. Ég var að enda við að skrifa grein um hausttískuna í förðun og það sem mér fannst standa upp úr er no makeup makeup, ljómandi húð, skærrauðar varir og seventís-stíll í litavali, ekki eingöngu í fötum og fylgihlutum heldur líka þegar kemur að förðun og litavali í augnskuggum, vara- og kinnalitum.“

Sólvarpúðrið frá Guerlain.
Sólvarpúðrið frá Guerlain.

Hvað er fólk að vinna með sem ekki hefur sést áður?

„Ef ég á að svara heiðarlega höfum við séð þetta allt saman áður á einhverjum tímapunkti en mér finnst samt alltaf jafn gaman að skyggnast baksviðs hjá stærstu tískuhúsum heims og sjá helstu förðunarmeistarana fara á kostum.“

Hvernig finnst þér áferðin á farðanum vera best þetta haustið (er það matt eða glans)? „Ljómandi húð er ekki að fara neitt í bráð en auðvitað virðist meiri þekja og mattari áferð eiga frekar upp á pallborðið þegar rökkva fer.“

Þessi farði frá Shiseido er í uppáhaldi.
Þessi farði frá Shiseido er í uppáhaldi.

Hver er besti farði sem þú hefur prófað?

„Þessi er svolítið erfið þar sem ég hef prófað þá marga. Ég segi ekki að þetta sé eins og að gera upp á milli barnanna sinna en spurningin er trikkí! Ég verð að nefna þrjá sem standa upp úr og ég hef virkilega orðið orðlaus yfir. Fyrst ber að nefna farða frá Pharmaceris sem Lilja snyrtipenni uppgötvaði fyrir mörgum árum þegar við unnum saman fyrir Vikuna og Nýtt líf. Hann þekur ótrúlega vel en nær að vera mjög náttúrulegur, er góður fyrir viðkvæma húð og hannaður af húðsérfræðingum. Það er svo mikill plús að hann fæst í apótekinu á um þrjú þúsund krónur.

Synchro Skin Self-Refreshing-farðinn frá Shiseido fékk líka mikið umtal þegar hann kom á markað og ég verð að segja að hann stóð undir öllum væntingum. Áferðin er dásamleg og hyljarinn í stíl er geggjaður. Miðlungsþekja og náttúruleg áferð sem endist vel á húðinni.

Svo get ég ekki talað um uppáhaldsfarða án þess að nefna Total Finish-púðurfarðann frá Sensai. Ég sem var með ákveðna fordóma fyrir púðri áður en ég kynntist honum, nú get ég ekki hugsað mér lífið án hans! Ég kalla hann fótósjopp í dós og ég nota hann yfir fljótandi farða, undir augun og aðallega á t-svæðið. Sjón er sögu ríkari þegar kemur að þessari helberu snilld. Hægt er að sjá hann í aksjón í myndböndum mínum fyrir Sensai á Facebook-síðu Sensai á Íslandi.“

Hvað um húðumhirðu, hvernig hugsar þú um húðina á þér?

„Ég hef gerst sek um að fara að sofa með farða á húðinni oftar en ég vil viðurkenna. Síðasta árið hef ég tekið mig í gegn og eftir að ég kynntist hreinsitvennunni frá Sensai hef ég verið mjög dugleg að þrífa hana og sé mikinn mun. Það er svo mikilvægt að hreinsa tvisvar, fyrst með olíukenndu efni til að leysa farðann upp og svo hreinsikremi eða froðu til að hreinsa húðina betur. Ég er líka á síðustu dropunum af Pure Shots Night Reboot Resurfacing Serumi frá YSL sem inniheldur Glycolic-sýru sem er nýja uppáhaldsinnihaldsefnið mitt þegar kemur að húðumhirðu. Ég hef líka verið mjög hrifin af Extra Intensive-augnkreminu frá Sensai. Svo er ég að endurnýja kynni mín við Advanced Night Repair frá Estée Lauder sem kom nýverið á markað í nýrri útgáfu. Alger költvara.“

Hvað finnst þér besta trix allra tíma þegar kemur að augnförðun?

„Teddy-augnblýantur frá MAC í vatnslínuna þegar smokey-förðun er gerð finnst mér ómissandi, hann gerir augnumgjörðina svo svakalega sexí. Eins finnst mér engin förðun fullkomnuð án þess að nota sólarpúður með stórum bursta og blanda skuggann þannig upp að augabrún.“

Hvernig er best að skyggja augnlokið?

„Mér finnst auðvelt að „krota“ mjúkum eyeliner upp við augnháralínu og blanda svo með mjóum bursta. Svo er sniðugt að nota trixið með sólarpúðrið og ljósan skugga í miðjuna.“

Getur þú kennt lesendum að skyggja á sér andlitið?

„Það er engin ein leið til að skyggja andlit allra enda erum við svo dásamlega ólík. Til þess að láta kinnbeinin poppa er um að gera að nota grátóna skuggalit undir þau en alls ekki draga litinn of langt. Svo er um að gera að skyggja náttúrulega með sólarpúðri í kringum andlitið og yfir nefið með stórum stippling-bursta.“

Hvað um varaliti, eru það gloss eða mattar varir?

„Ég nota gjarnan uppáhaldsvarablýantinn minn til að stækka varirnar og lita þær allar, þannig fæ ég frekar náttúrulegt og „effortless“ lúkk. Uppáhaldslitirnir mínir heita Classy Rose (Your lips but better-litur) og Stunning Nude (brúntóna nude-litur).“

Hvað dreymir þig um að eignast í snyrtibudduna?

„Mig langar í augnhárabrettara frá Shiseido sem ég hef heyrt góða hluti um en var uppseldur á Tax Free. Svo langar mig til þess að prófa CC-kremið frá It Cosmetics og allar húðvörurnar frá SkinCeuticals sem eru seldar í Húðlæknastöðinni, þær fá geggjaða dóma. C E Ferulic-serumið er mest selda varan frá þeim en C-vítamín gerir kraftaverk fyrir húðina og þessar vörur innihalda mikið magn virkra efna eins og C- og E-vítamína og ferulic-sýru. Ég er svo tilíða!“

Helgu langar í þennan augnhárabrettara.
Helgu langar í þennan augnhárabrettara.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál