Haustförðun í anda Dua Lipa

Thelma Kristín Bjarnadóttir er hér förðuð af Björgu Alfreðsdóttur í …
Thelma Kristín Bjarnadóttir er hér förðuð af Björgu Alfreðsdóttur í anda Dua Lipa. mbl.is/Arnþór Birkisson

Björg Alferðsdóttir, international makeup artist Yves Saint Laurent á Íslandi, farðaði Telmu Kristínu Bjarnadottur með nýjustu litunum frá YSL. 

„Haustið er minn uppáhaldstími í förðun þar sem áherslan færist úr léttri náttúrulegri förðun yfir í meiri augnförðun og dekkri varir. Ég sótti innblástur að þessu sinni í förðun Dua Lipa sem er andlit LIBRE-ilmvatnsins frá YSL, þar sem áhersla er á dökka og dramatíska augnförðun með náttúrulegum vörum,“ segir Björg.

Söngkonan Dua Lipa er að gera frábæra hluti á tónlistarsviðinu. …
Söngkonan Dua Lipa er að gera frábæra hluti á tónlistarsviðinu. Hér er hún með dökk augu og ljósari varir sem er mikið í tísku núna.

Þegar kólna fer í veðri er enn mikilvægara að undirbúa húðina til að ná fram fallegri og jafnri áferð.

„Ég vil ekki nota of þykk og mikil krem fyrir förðun og vel því að nota gott andlitsvatn sem fyllir húðina raka og létt serum yfir sem jafnar áferð og dregur fram ljóma húðarinnar, Pure Shots-línan frá YSL er mín „go to“ núna.

Pure Shots línan frá YSL er mjög nærandi fyrir húðina.
Pure Shots línan frá YSL er mjög nærandi fyrir húðina.

Yfir haust- og vetrartíma viljum við margar meiri þekju svo ég notaði All Hours-línuna á Telmu, farðinn og hyljarinn gefa miðlungs upp í mikla þekju, endast í allt að 24 klukkutíma og eru vatnsheldir.“

Til að fríska upp á húðina og fá meiri hreyfingu í förðunina notaði hún létt sólarpúður og mildan kinnalit.

Nýja litapallettan frá YSL er heillandi en með þessum tíu …
Nýja litapallettan frá YSL er heillandi en með þessum tíu litum er hægt að leika sér endalaust.
Umbúðirnar eru í anda YSL.
Umbúðirnar eru í anda YSL.
Hér sést hvernig Björg farðaði augun. Liturinn er ljósari í …
Hér sést hvernig Björg farðaði augun. Liturinn er ljósari í augkróknum en dökknar í kantana. mblo.is/Arnþór Birkisson

„Fyrir stuttu komu nýjar augnskuggapallettur frá YSL sem innihalda 10 liti sem henta fyrir hvaða förðun sem er. Ég notaði pallettu nr.1, Paris, sem inniheldur ótrúlega klæðilega litasamsetningu sem toppar hvaða augnförðun sem er. Til að fá meiri dýpt notaði ég fyrst Couture Kajal-augnblýant og blandaði honum vel, því næst dreifði ég augnskugganum yfir augnlokið og endaði svo á vinsælasta maskaranum frá YSL, Mascara Volume Effet Faux Cils.

Maskarinn Mascara Volume Effet Faux Cils frá YSL gefur mikla …
Maskarinn Mascara Volume Effet Faux Cils frá YSL gefur mikla fyllingu.
Slim sheer-varalitirnir frá YSL gefa fallega matta áferð. Björn notaði …
Slim sheer-varalitirnir frá YSL gefa fallega matta áferð. Björn notaði lit númer 102 í förðunina.

Þar sem ég ákvað að leggja aðaláhersluna á augun finnst mér fallegt að velja frekar hlutlausan varalit á móti. Slim sheer-varalitirnir gefa matta satínáferð og koma ótrúlega fallega út á vörunum, ég notaði lit nr. 102 sem er nude með örlitlum bleikum tóni. Mitt lokaskref í hverri förðun er svo All Nighter setting sprey frá Urban Decay sem gefur förðuninni allt að 16 klst. endingu.“

All Nighter frá Urban Decay gerir það að verkum að …
All Nighter frá Urban Decay gerir það að verkum að förðunin endist og endist.
All hours hyljarinn endist mjög lengi.
All hours hyljarinn endist mjög lengi.
All Hours farðinn frá YSL er fyrir þær sem vilja …
All Hours farðinn frá YSL er fyrir þær sem vilja láta förðunina endast í marga klukkutíma.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál