Afmælisveisla Kim Kardashian West er sönnun þess að maður verður bara fertugur einu sinni á ævinni. Kardashian West sparaði ekkert til og bauð nánustu vinum og fjölskyldu í veislu á einkaeyju. Hún sparaði ekki heldur þegar kom að kjólnum en kjóllinn hennar kostaði 1,4 milljónir króna.
Kardashian West valdi sérstakan kjól fyrir tilefnið, gylltan kjól úr Time Machine-línunni frá Vivienne Westwood sem gefin var út vorið 1988. Eins kjóll úr línunni kostar 9,970 þúsund bandaríkjadali eða um 1,4 milljónir.
Við kjólinn var hún í gylltum hælaskóm frá Aminu Muaddi sem kosta bara 120 þúsund íslenskar krónur.
Áður en Kardashian West skellti sér á einkaeyjuna til að halda veislu héldu systur hennar og móðir óvænt partí fyrir hana. Þar var hún í fallegum gylltum kjól frá Dolce & Gabbana og í skóm frá René Caovilla.