Stíll skákmeistarans í anda Hepburn og Seberg

Anya Taylor-Joy fer með stórleik í The Queen's Gambit.
Anya Taylor-Joy fer með stórleik í The Queen's Gambit. Ljósmynd/Netflix

Fyrir einhverjum mánuðum hefði ekki þótt eftirsóknarvert að klæða sig eins og skákmeistari. Eftir að þættirnir The Queen's Gambit slógu í gegn er það hins vegar á allra vörum hversu einstaklega fallegur stíll skákmeistarans Beth Harmon er í þáttunum. 

Stíll Harmon, sem Anya Taylor Joy leikur, er einstaklega fágaður og fá áhorfendur að fylgjast með henni uppgötva heim tískunnar, samhliða því sem hún skákar og mátar hvern meistarann á fætur öðrum.

„Eftir því sem Beth þroskast breytist stíll hennar eftir stöðunum sem hún ferðast til og því sem hún upplifir. Stíllinn hennar snemma í þáttunum er undir áhrifum frá Jean Seberg, Audrey Hepburn og Natalie Wood,“ segir búningahönnuðurinn Gabriele Binder í viðtali við Popsugar.

Þegar Beth Harmon uppgötvar heim tískunnar.
Þegar Beth Harmon uppgötvar heim tískunnar. Ljósmynd/Netflix

Litapallettan er svartur, hvítur og pastellitir í bland við smá liti eins og rauðan, bláan og gulan.

„Klæðaburður hennar verður fágaðri í París og Moskvu, þar sem við fengum innblástur frá frönsku nýbylgjunni. Við horfðum til Romy Schneider og Juliette Gréco og á kvikmyndir á borð við Contempt og Breathless. Ef þú horfir á þær núna finnurðu enn eitthvað nútímalegt við þær, með tilliti til stílsins,“ segri Binder.

Í svörtu og hvítu í Moskvu.
Í svörtu og hvítu í Moskvu. Ljósmynd/Netflix

Öll fötin sem Harmon klæddist í þáttunum eru til sýnis á Brooklyn-safninu í New York, sem vann með Netflix að sýningunni. Fyrir áhugafólk um bresku konungsfjölskylduna er þar einnig að finna alla búningana úr The Crown.

Slæmu fréttirnar eru hins vegar þær að Binder hannaði og lét sauma öll fötin svo þau fást ekki úti í búð. Það er samt sem áður hægt að sækja innblástur í þættina og velja sér föt í anda þeirra.

Fullkominn kjóll í anda 7. áratugarins.
Fullkominn kjóll í anda 7. áratugarins. Ljósmynd/Netflix
Stíll Harmon varð fágaðri þegar leið á seríuna.
Stíll Harmon varð fágaðri þegar leið á seríuna. Ljósmynd/Netflix
Þægileg heimaföt.
Þægileg heimaföt. Ljósmynd/Netflix
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál