Hvernig er best að hugsa um húðina um fertugt?

Hverinig er best að hugsa um húðina í kringum fertugt?
Hverinig er best að hugsa um húðina í kringum fertugt? Kevin Laminto/Unsplash

Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu varðandi húðumhirðu og hvað sé best að gera til þess að húðin verði sem best. 

Hæ.

Ég er að nálgast fertugt og hef aldrei hugsað neitt sérstaklega um húðina mína, sett á mig rakakrem og varla nokkuð annað. Nú langar mig að byrja að spá í þessu og ég verð að segja að eftir því sem ég les meira um þetta á netinu því ruglaðri verð ég. Hvað ráðleggur þú að ég geri?

Kveðja, ÓB

Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni.
Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni. Ljósmynd/Gígja Einarsdóttir

Komdu sæl.

Það er ekki nema von að þér finnist þetta ruglandi þar sem mikið er í boði, margar ólíkar vörur og allir með bestu lausnina fyrir þig! Þar sem þú ert að byrja að spá í þessu þá skulum við byrja á grunninum, hinni heilögu þrenningu, eins og við húðlæknar köllum það, sem allir ættu að koma inn í sína húðrútínu sem eru að hugsa um að vernda húðina, fyrirbyggja öldrunarbreytingar og viðhalda heilbrigði hennar. Þetta eru þær húðvörur sem eru með sterkustu rannsóknirnar á bak við sig og hafa margsannað gildi sitt. Hin heilaga þrenning er sem sagt SÓLARVÖRN, ANDOXUNAREFNI og RETINÓL. Það geta allir notað sólarvarnir en það sama gildir ekki um andoxunarefnin og retinól og þeir sem eru með viðkvæma húð eða bólgusjúkdóm í andliti eins og rósroða eiga oft erfitt með að nota þessar vörur. Best er að leita ráða hjá húðlæknum ef þú ert í vafa um hvort þú þolir áveðnar húðvörur og til að fá frekari ráðleggingar.

SÓLARVÖRN – verndar og fyrirbyggir

Allir geta notað sólarvörn, það er bara að vinda sér í málið og finna þá sólarvörn sem hentar þér!  Sem betur fer er til mikið úrval af góðum sólarvörnum í dag, þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  Við mælum með því að velja sólarvörn fyrir andlit og með SPF þætti 30-50 sem inniheldur steinefni eins og titanium díoxíð eða zink oxíð (mineral sólarvarnir). Þessar varnir eru öruggar fyrir húðina og verja okkur betur gegn kulda og vindi en þær sem eru kemískar. Þær eru eitt besta kuldakremið sem til er fyrir útivistina! Muna svo að bera á sig tvisvar á dag ef þú ert útivið allan daginn, eða á ca 4-6 klukkustunda fresti. Sólin er aðal skaðvaldurinn þegar kemur að ótímabærum öldrunarbreytingum í húðinni, eins og tapi á þéttleika, litabreytingum, æðaslitum, hrukkum og fínum línum. Ef sólarvörn er notuð rétt, þá getur hún komið í veg fyrir 80-90% af þessum breytingum.

ANDOXUNAREFNI- verndar og fyrirbyggir

Með því að nota andoxunarefni á morgnana þá eflum við enn frekar varnir húðarinnar og bætum áhrif sólarvarnarinnar. Á hverjum degi verður húðin fyrir stöðugri geislun, hvort sem það er af völdum sólargeisla eða til dæmis snjalltækja. Umhverfismengun, á borð við útblástur ökutækja, myndar einnig sindurefni (fríir radikalar) í húðinni okkar. Okkar eigin líkami hlutleysir þessi sindurefni í húðinni en ef það verður mikil myndun þessa sindurefna, eins og t.d vegna miklillar geislunar sólarinnar, þá náum við ekki að hlutleysa þau og þau valda skaða í húðfrumunum. Þessi skaði kemur svo hægt og rólega en örugglega, fram sem fínar línur, aukinn slappleiki og ójöfn áferð. Til þess að efla varnir okkar gegn þessum sindurefnum getum við eflt þetta kerfi með því að bera andoxunarefni á húðina.  Ýmis vítamín, á borð við C- og E-vítamín, hafa góð andoxandi áhrif og má finna þau í ávöxtum og grænmeti. Það hefur þó færst í aukana að nota andoxunarefni í staðbundnum meðferðum og hafa húðvörur sem innihalda andoxunarefni notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Algengustu andoxunarefnin í húðvörum eru C- og E-vítamín, ferulic sýra, níasín og resveratról.

Þú getur tekið svolítinn tíma að finna besta andoxunarefnið fyrir þig þar sem þau vinna á ólíkan hátt og það er mismunandi hvað hentar þinni húðgerð. C-vítamín er þekktasta andoxunarefnið og mikil rannsóknarvinna liggur að baki þess. Það örvar kollagen- og elastínframleiðslu húðarinnar, svo hún verður þéttari, fyrirbyggir uppkomu öldrunarmerkja á húðinni og vinnur sérlega vel gegn litamisfellum.  E-vítamín er oft notað með C-vítamíni þar sem það vinnur vel með því og nær aðeins dýpra í húðina. Undanfarið hefur níasín, eða B3-vítamín, notið mikilla vinsælda í húðvörum. Það bætir áferð húðarinnar og húðtón en hefur einnig róandi og bólgueyðandi áhrif á húðina. Níasín hefur því gjarnan verið notað af fólki með rósroða eða bólur. Annað andoxunarefni vert að nefna er svo resveratról, sem er aðal andoxunarefnið í rauðvíni, en það er borið á húðina á kvöldin þar sem það örvar viðgerðarferli húðarinnar yfir nóttina.

RETINÓL - uppbyggjandi

Hér erum við að tala um hetjuna í húðumhirðu. Það er ekki að ástæðulausu að retinól krem eru vinsæl og mikið talað og skrifað um þau í dag, enda eru á bak við efnið fjöldinn allur af klínískum rannsóknum sem sanna að retínól er eitt fárra efna sem búa yfir margþættum húðbætandi eiginleikum og er öflugasta efnið í húðvörum til að hægja á uppkomu öldrunarmerkja í húðinni. Strax um 25 ára aldur fer að hægja á kollagen framleiðslu húðarinnar en kollagen er eitt helsta uppbygginarefni húðarinnar. Til að hægja á þessu ferli og örva kollagenframleiðsluna kemur retinólið sterkt inn. Ef þú notar retinól reglulega verður áferð húðarinnar þar af leiðandi bjartari, sléttari, fínar línur grynnka og litamisfellur verða minna áberandi. Þar sem retinól örvar náttúrulega framleiðslu húðarinnar á kollageni fer húðin smám saman að verða þéttari og þar af leiðandi stinnari. Retinól minnkar einnig fituframleiðslu í fitukirtlum og fækkar fílapenslum með þeirri jákvæðu hliðarverkun, að svitaholur verða minna áberandi. Retinól er sterkt og getur verið ertandi fyrir viðkvæma húð og þar af leiðandi geta ekki allir notað það. Mjög mikilvægt er að byrja hægt og trappa notkunina varlega upp, byrja kannski bara tvö kvöld í viku. Ef retinólið þolist vel geturðu aukið notkunina og borið á þig annað hvert kvöld í þrjár til fjórar vikur. Á fimmtu viku ættirðu að geta notað retínóíð á hverju kvöldi en þetta fer þó allt eftir því hvað húðin þín þolir. Ef húðin þín er mjög viðkvæm er mælt með því að byrja á meðferðinni einu sinni til tvisvar sinnum í viku og láta þrjár til fjórar vikur líða á milli þess sem þú eykur notkunina. Retinól krem skal bera á hreina húð og í þunnu lagi en mikilvægt er að það komi ekki nálægt augum og munnvikum, þar sem húðin þar er mjög viðkvæm. Þar sem erting á borð við roða, sviða eða brunatilfinningu getur komið upp í húðinni í tengslum við retinól meðferð getur reynst gott að bera rakakrem á húðina þrjátíu mínútum fyrir meðferðina og þrjátíu mínútum eftir hana. Mikilvægt er að hafa í huga, að ekki er æskilegt að nota retinól á sama tíma og húðvörur sem innihalda salicylic sýru eða benzoyl peroxíð.

Ég tala um retinól hér en þetta er í raun hópur A-vítamín skyldra efna og bera ólík nöfn eins og retinól palmytate (vægast), retinól (miðlungssterkt) og retinaldehyde (sterkt). Sterkustu kremin sem innihalda retinóíð sýru, eins og Adapalene (Differin) og Tretinoin, eru lyfseðilsskyld.

Enn og aftur að sólarvörninni sem er lang mikilvægust af þessari heilagri þrenningu! Ef þú notar retinól er það enn mikilvægara að bera á sig sólarvörn á hverjum morgni þar sem þessi efni auka ljósnæmi húðarinnar. Notaðu sólarvörn með SPF 30 að lágmarki.

Hvernig notarðu svo þessa heilugu þrenningu saman?

Flest andoxunarefni vinna vel saman og má nota þau daglega. Á morgnana er tilvalið að nota C-vítamín eða níasín en þú berð formúluna á hreina húðina. E-vítamín má nota kvölds og morgna en því er gjarnan blandað við C-vítamín til að auka stöðugleika þess síðarnefnda. Þar á eftir notarðu rakakrem og svo að lokum sólarvörn. Á kvöldin er resveratról góður valkostur þar sem það hefur róandi áhrif á húðina og hjálpar viðgerðarferli hennar. Retinól skal nota eftir því sem húðin þolir, en ágætt er að byrja á að nota það 1-2 kvöld í viku og auka notkunina hægt á tveggja vikna fresti. Þó andoxunarefni auki vissulega varnir húðarinnar gegn sólargeislum að einhverju leiti koma þau ekki í stað sólarvarnar og er því ávallt mælt með notkun sólarvarnar, að lágmarki SPF 30, daglega.

Hvaða vörur innihalda þessi efni?

Það eru fjöldi vörumerkja sem innihalda bæði andoxunarefni og retinól. Gæði varanna er mismunandi en um að gera að prófa sig áfram og sjá hvað hentar þinni húð. Góð vörumerki eru t.d. SkinCeuticals, The Ordinary, Neostrata, The Inkey List og CeraVe.

Kær kveðja, 

Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir.

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Jennu Huld spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál