Ekki lagt frá sér prjónana síðan í fyrstu bylgju

Ísabella Rós Ingimundardóttir lærði að prjóna þegar hún var ung …
Ísabella Rós Ingimundardóttir lærði að prjóna þegar hún var ung stelpa. Áhuginn á handavinnu hefur fylgt henni síðan. mbl.is/Kristinn Magnússon

Amma Ísabellu Rósar Ingmundardóttur kenndi henni fyrst að prjóna þegar hún var lítil stelpa. Síðan þá hefur handavinna verið eitt af aðaláhugamálum Ísabellu og í dag er hún farin að hanna sínar eigin uppskriftir. 

Ísabella, sem er 22 ára verkfræðinemi við Háskóla Íslands, prjónar mest á sjálfa sig en líka fólkið í kringum sig. Hún er hluti af prjónasamfélaginu Ungir prjónar á Instagram þar sem ungar hannyrðakonur sýna frá handavinnunni sinni. 

Prjónaæði hefur gripið um sig í heimsfaraldrinum og ekki bara á Íslandi heldur líka í Skandinavíu. Það sést greinilega á samfélagsmiðlum þar sem skandinavíska prjónasamfélagið blómstrar. 

Ísabella tók prjónana aftur upp í fyrstu bylgjunni.
Ísabella tók prjónana aftur upp í fyrstu bylgjunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ísabella Rós tók einmitt aftur upp prjónana í fyrstu bylgjunni í vor og hefur varla lagt prjónana frá sér síðan. Þá hafa margar peysur af öllum stærðum og gerðum, vesti, pils og hárbönd dottið af prjónunum hjá henni og núna vinnur hún í að búa til sína fyrstu uppskrift að peysu. 

„Ég hef alltaf haft gaman af því að sinna alls kyns handavinnu, en amma mín kenndi mér að prjóna og hekla þegar ég var mjög ung. Hún er mín helsta fyrirmynd í allri handavinnu og það er gott að geta alltaf leitað til hennar hvort sem ég þarf aðstoð, innblástur eða hvatningu. Á seinni árum í grunnskóla prjónaði ég og heklaði mikið og fannst það ótrúlega skemmtilegt. Þegar ég fór í menntaskóla minnkaði handavinnan aðeins en í fyrri bylgju Covid tók ég aftur upp prjónana og hef ekki stoppað síðan. Í dag er handavinna, og þá sérstaklega prjón, mitt helsta áhugamál en það er klárlega mín leið til að bæði slaka á og vera skapandi.“

Hver peysan á fætur annarri hefur dottið af prjónunum hjá …
Hver peysan á fætur annarri hefur dottið af prjónunum hjá Ísabellu síðan í vor. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mikið af ungu fólki búið að taka upp prjónana

„Mér finnst ótrúlega heillandi að hugsa til þess að flestar, ef ekki allar, formæður mínar kunnu að prjóna og það hafi verið gert hér á landi í aldanna rás. Í dag eru það samt alls ekki bara ömmur og mömmur sem eru að prjóna, þrátt fyrir að þær séu eflaust margar, heldur ótrúlega margir á mínum aldri. Með tilkomu samfélagsmiðla er töluvert einfaldara að fá innblástur og deila fallegum myndum af prjóninu sínu sem er ofboðslega hvetjandi. Mjög margt yngra fólk hefur byrjað að prjóna eða hekla aftur í Covid sem er ótrúlega skemmtilegt og gaman að sjá hvernig prjónasamfélagið á Íslandi er sífellt að stækka á samfélagsmiðlum.“

Í haust fékk hún boð um að vera með í prjónahópnum Ungir prjónar sem telur 10 stelpur á milli tvítugs og þrítugs sem elska að prjóna. 

Hvaða prjónaverkefni hafa verið skemmtilegustu verkefnin?

„Skemmtilegustu verkefnin eru yfirleitt þau sem ég er með á prjónunum hverju sinni en mér finnst samt alltaf skemmtilegast þegar ég er að læra eitthvað nýtt. Upp á síðkastið hef ég verið að færa mig aðeins út fyrir boxið og farið eftir eigin höfði í stað þess að fylgja uppskriftinni nákvæmlega, sem mér hefur fundist ofboðslega skemmtilegt. Núna er ég einmitt að hanna mína fyrstu uppskrift sem hefur verið ótrúlega lærdómsríkt, spennandi og skemmtilegt.“

Ísabella segir að einlitar peysur séu mikið í tísku um …
Ísabella segir að einlitar peysur séu mikið í tísku um þessar mundir. mbl.is/Kristinn Magnússon
Ísabella leggur stund á iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands.
Ísabella leggur stund á iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samfélagsmiðlarnir tengja saman og veita innblástur

Ísabella sækir mikinn innblástur á Instagram en prjónasamfélagið þar er blómlegt og auðvelt að sækja innblástur þaðan. Samfélagsmiðlarnir hafa líka þann kost að tengja saman prjónara alls staðar af á landinu.

„Ég prjóna langmest á mig sjálfa en hef einnig verið að prjóna aðeins á fólkið í kringum mig. Oftast eru það peysur en alls konar minni verkefni læðast líka inn á milli með. Instagram er klárlega minn helsti innblástur í handavinnu og ég elska hvað það eru margir búnir að opna aðgang þar til að deila sínum handverkum, ráðum og innblæstri. Pinterest er einnig ofarlega á lista til að fá innblástur en þar eru alls konar sniðugar útfærslur á alls kyns handavinnu,“ segir Ísabella.

Prjón.
Prjón. mbl.is/Kristinn Magnússon

Að prjóna sínar eigin flíkur passar vel við hugmyndafræðina um hæga tísku (e. slow fashion). Það heillar Ísabellu mikið. „Það tekur mun lengri tíma að prjóna flíkina en að stökkva út í næstu tískuvöruverslun og kaupa sér hana, hún endist mun lengur og gæðin eru talsvert meiri. Þegar maður hefur lagt svona ótrúlega mikla vinnu, þolinmæði og tíma í að skapa sína eigin flík, þá verð ég að minnsta kosti svo ótrúlega stolt af mér þegar ég er í flíkinni. Það er líka svo gaman að geta ákveðið alveg sjálfur hvernig maður vill hafa flíkina, allt frá garni, lit og grófleika yfir í mynstur og snið,“ segir Ísabella. 

Hvað er mest í tísku í prjónaheiminum í dag?

„Í dag eru einlitar flíkur, bæði einfaldar og með einlitu mynstri, mjög áberandi. Í garni er mohair ótrúlega vinsælt, bæði eitt og sér eða sem aukaþráður með öðru garni. Svo finnst mér ekki síður mikilvægt að minnast á að taka fallegar myndir af prjóninu sínu, ætli það sé ekki bara svolítið í tísku?“

Hvaða ráð getur þú gefið þeim sem vilja byrja prjóna en vita ekki hvar þau eiga að byrja

„Helsta ráð sem ég get gefið er fyrst og fremst að velja þér verkefni sem þig virkilega langar til að prjóna og sérð fyrir þér að þú munir nota. Það veitir manni ákveðna hvatningu til að halda áfram með verkefnið, því það mun taka tíma. Svo skaltu ekki vera feimin/n við að biðja um aðstoð!! Hvort sem það er einhver sem þú þekkir, instagramskilaboð eða gúgla,“ segir Ísabella.

Hægt er að fygljast með Ísabellu á Instagram undir nafninu Madebybellaros.

Þessi peysa er núna á prjónunum hjá Ísabellu.
Þessi peysa er núna á prjónunum hjá Ísabellu. mbl.is/Kristinn Magnússon
Prjón.
Prjón. mbl.is/Kristinn Magnússon
Ísabella prjónar ekki bara flíkur.
Ísabella prjónar ekki bara flíkur. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál