Lét hárið fljúka eftir sambandsslitin

Ana de Armas sýndi nýju klippinguna á sunnudag.
Ana de Armas sýndi nýju klippinguna á sunnudag. Skjáskot/YouTube

Leikkonan Ana de Armas er búin að fara í klippingu síðan leiðir hennar og leikarans Bens Afflecks skildi. Greint var frá því í vikunni að þau hefðu bundið enda á samband sitt í byrjun árs.

Hin 32 ára gamla leikkona mætti í viðtal á sunnudag þar sem hún skartaði stuttu dökku hári. De Armas var áður með hár í axlasídd með brúnum strípum í.

Parið hafði verið saman í tæpt ár en þau sáust fyrst saman í mars á síðasta ári. Leiðir þeirra skildi því þau voru ekki á sömu blaðsíðu um framtíðina. Hún var sögð vilja stofna fjölskyldu með honum en hann var ekki á þeim buxunum að eignast fleiri börn. 

Ana de Armas og Ben Affleck þegar allt lék í …
Ana de Armas og Ben Affleck þegar allt lék í lyndi. Skjáskot/YouTube
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál