Kvaddi gamla lífið í 500.000 króna kjól

Melania Trump í fallegum kjól frá Gucci.
Melania Trump í fallegum kjól frá Gucci. AFP

Melania Trump skilaði titlinum forsetafrú Bandaríkjanna á miðvikudaginn. Hún kvaddi lífið í hvíta húsinu í svörtum sorgarlit en hóf nýtt líf í litríkum kjól. Forsetafrúin fyrrverandi gekk út úr flugvél forsetaembættisins í Flórída í síðum kjól og leit ekki til baka. 

Kjóllinn sem vakti svona mikla athygli var langerma kjóll frá Gucci í anda áttunda áratugar síðustu aldar. Appelsínugulur, blár og hvítur litir lífga upp á kjólinn ásamt skemmtilegu munstri. Kjóllinn kostar 3.700 bandaríkjadali eða tæpa hálfa milljón íslenskra króna. 

Melania og Donald Trump í Flórída.
Melania og Donald Trump í Flórída. AFP

Kjóllinn var algjör andstæða við svarta jakkann frá Chanel og svarta kjólinn frá Dolce og Gabbana sem hún klæddist þegar hún yfirgaf Hvíta húsið. Kannski fatavalið sé táknrænt fyrir aukið frelsi á næstu mánuðum og árum! 

Donald og Melania Trump. Melania yfirgaf Washington í svörtu.
Donald og Melania Trump. Melania yfirgaf Washington í svörtu. AFP
Donald og Melania Trump.
Donald og Melania Trump. AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál