Ljótustu gallabuxur í heimi?

Gallabuxurnar eru sérstakar.
Gallabuxurnar eru sérstakar. Ljósmynd/Shein

Tískumerkið Shein er sagt hafa tekið rifnar gallabuxur í nýjar hæðir. Gallabuxur sem eru í sölu í netverslun merkisins hafa vakið mikla athygli enda virðist einna helst vanta efra framstykkið á buxurnar. 

Buxurnar, sem kosta 25 bandaríkjadali eða rúmlega 3.200 krónur, virðast nokkuð venjulegar þegar horft er á þær að aftan. Að framan fá nærbuxurnar hins vegar að skína ef sá sem klæðist buxunum er í nærbuxum á annað borð. Á buxurnar vantar rennilás en skálmarnar þó saumaðar saman. 

Gallabuxurnar hafa vakið mikla athygli á netinu og er athyglin helst neikvæð. Netverjar furða sig á af hverju í ósköpunum það vantar efnisbút á þessu svæði og hvort það sé eftirsótt að sýna nærbuxur á þennan hátt. Dæmi hver fyrir sig.

Gallabuxurnar virðast ósköp venjulegar aftan frá.
Gallabuxurnar virðast ósköp venjulegar aftan frá. Ljósmynd/Shein
Vantar bút á þessar gallabuxur?
Vantar bút á þessar gallabuxur? Ljósmynd/Shein
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál