Þessir farðar laða fram það besta

Ef það er eitthvað sem skiptir máli þegar heildarmyndin er annars vegar þá er það að velja réttan farða. Hér eru nokkrir framúrskarandi farðar sem geta breytt tilverunni. 

La Mer The Hydrating Powder Foundation

Um er að ræða nýjan kremkenndan púðurfarða með silkiáferð sem bráðnar við snertingu og fellur vel að húðlitnum.

Farðinn gefur ferskt og heilbrigt útlit.

Þyngdarlaus áferðin bráðnar inn í húðina og felur strax alla bletti, minnkar svitaholur og dregur úr fínum línum og hrukkum. Hann er líka rakagefandi.

La Mer The Hydrat­ing Powder Foundati­on.
La Mer The Hydrat­ing Powder Foundati­on.

Estée Lauder Re-Nutriv Ultra

Um er að ræða frábæran farða sem gefur húðinni ljóma. Í hverri flösku má finna gljáorku tveggja peridot-steina sem hjálpar við að efla náttúrulega orku húðarinnar til endurnýjunar. Milljónir af örfínum einingum gimsteina skila okkur gallalausri, glitrandi fegurð. Öflug Re-Nutriv-formúlan ljær húðinni mýkri og sveigjanlegri áferð og hún verður jafnari, misfellur og húðop minnka. Silkikennd áferðin endist lengi og heldur húðinni ferskri í dagsins önn.

Estée Lauder Re-Nutriv Ultra
Estée Lauder Re-Nutriv Ultra

MAC Studio Fix Fluid

Það þarf varla að kynna þennan farða en hann er einn sá vinsælasti frá MAC. Formúlan er létt og gefur nátúrulega matta áferð. Hægt er að byggja formúluna upp í þá þekju sem hver og einn vill. Formúlan andar vel og stíflar ekki húðholur. Gefur húðinni slétt og náttúrulegt útlit.

MAC Studio Fix Fluid.
MAC Studio Fix Fluid.

Guerlain L'essentiel

Þessi farði nærir húðina vel og virkar svolítið eins og gott rakakrem. Hann inniheldur 97% náttúruleg innihaldsefni og veitir húðinni náttúrulegan ljóma sem endist lengi eða í allt að 16 klukkutíma. Farðinn gerir húðina matta og gefur henni þessa áferð sem er svo eftirsóknarverð núna. Áferð farðans minnir helst á eigin húð en hann er léttur og veitir miðlungsþekju. Húðliturinn verður jafnari með notkun farðans en hann gefur einnig góðan raka. Hentar vel fyrir húð með rósroða.

Guerlain L'essentiel.
Guerlain L'essentiel.

Chanel Ultra Le Teint

Þær sem elska púðurfarða eiga eftir að dýrka þennan frá Chanel. Hann veitir náttúrulegt útlit og mattar andlitið. Þegar þú ert búin að setja hann á þig verðurðu svolítið eins og ofurfyrirsætur níunda áratugarins sem fóru aldrei út úr húsi nema með matt og seiðandi andlit. Farðinn blandast vel inn í húðina og er auðveldur í notkun.

Chanel Ultra Le Teint.
Chanel Ultra Le Teint.

YSL Touche Éclat Le Taint

Þessi farði býr yfir mörgum góðum eiginleikum. Hann er mjúkur og endingargóður og er þessi endurbætta útgáfa með meiri ljóma og örlítið mýkri en sá fyrri. Hann verndar húðina gegn rakatapi og ver hana gegn umhverfisáhrifum. Farðinn endist í sólarhring og er hann þannig uppbyggður að húðin andar í gegnum hann. Farðinn gefur náttúrulegan ljóma og áferðin er silkimjúk. Farðinn inniheldur SPF 22 / PA++. Þessi farði var hannaður í stíl við hinn vinsæla gullpenna frá YSL en hann hefur verið ein mest selda vara fyrirtækisins í 25 ár.

YSL Touche Éclat Le Taint.
YSL Touche Éclat Le Taint.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál