Starfar hjá By Malene Birger í Kaupmannahöfn

Laufey Lúðvíksdóttir er yfirmaður rafrænna viðskiptasamskipta (e. Customer Relationship Management …
Laufey Lúðvíksdóttir er yfirmaður rafrænna viðskiptasamskipta (e. Customer Relationship Management in Ecommerce) hjá By Malene Birger.

Laufey Lúðvíksdóttir hefur það gott í Danmörku með fjölskyldunni sinni. Hún hefur óbilandi áhuga á tísku, þótt fataskápurinn hennar sé ekki að springa úr óþarfa varningi. Laufey er viðskiptafræðingur og fatahönnuður að mennt en er á því að hlutverk hennar sem tvíburamamma sé án efa það merkilegasta.

Hún er yfirmaður rafrænna viðskiptasamskipta (e. Customer Relationship Management in Ecommerce) hjá By Malene Birger þar sem hún fæst við stafræna markaðssetningu, stefnuþróun og ákvarðanir um rafræna markaðssetningu fyrirtækisins.

„Dagarnir eru mjög fjölbreyttir en þessa dagana snýst vinnan að mörgu leyti um að bregðast við breyttu landslagi í verslun sem hefur skapast í heimsfaraldrinum, en í augnablikinu eru allar okkar verslanir í Danmörku og Bretlandi lokaðar. Því fylgja miklar áskoranir; ásamt því að sinna hefðbundinni markaðssetningu erum við að leita nýrra leiða og þróa okkur áfram til þess að geta betur náð tökum í þessu nýja umhverfi!“

Vinnur að heiman í faraldrinum

Laufey segir að þessa dagana vinni hún að heiman og vakni því yfirleitt við fót eða olnboga í andlitinu frá öðrum hvorum tvíburanna sinna.

„Ég er mjög stolt tvíburamamma. Synir mínir eru fjögurra ára. Ég er frekar hress á morgnana og ríf mig á fætur hvern morgun og helli upp á kaffi. Við fjölskyldan reynum að eiga gæðastund saman yfir morgunmatnum áður en drengirnir fara í leikskólann.“

Dæmigerður dagur í vinnunni hjá Laufeyju hefst á stöðufundi með yfirmönnum markaðsmála.

„Svo er unnið að þeim verkefnum sem liggja fyrir. Þrisvar í viku fer ég út að hlaupa í hádeginu.“

Íslendingar þekkja By Malene Birger-vörumerkið og er það í uppáhaldi hjá mörgum á Íslandi.

„Það er ótrúlega skemmtilegt hvað margir þekkja merkið hér í Danmörku og einnig á Íslandi. Það hjálpar til þegar ég segi fólki hvað ég fæst við. Þetta er fyrirtæki sem hefur frá stofnum verið með konur við stjórn og það eru mikil forréttindi að fá að vinna í skapandi umhverfi með kraftmiklum konum.“

Kaupmannahöfn er heimilisleg stórborg

Áttu þér uppáhaldsflík frá vörumerkinu?

„Ég elska peysur. Í Danmörku er stundum óhugnanlega kalt á veturna líkt og á Íslandi og því eru By Malene Birger-peysurnar mínar í algjöru uppáhaldi.“

Aðspurð hvað sé á óskalistanum fyrir heimilið í vetur segir hún að því miður sé By Malene Birger ekki að selja marga hluti fyrir heimilið.

„Efst á óskalistanum eru stólar frá Jean Prouvé fyrir borðstofuna. En bestu kaup heimilisins á síðasta ári voru JFK-skrifborð frá Norr11, sem hefur komið sér einstaklega vel nú þegar vinnan fer mest fram á heimilinu.“

Íslenska vörumerkið ChitoCare Beauty.
Íslenska vörumerkið ChitoCare Beauty.

Laufey er menntaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands og er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskóla Íslands.

„Ég flutti til Kaupmannahafnar til að fara í skiptinám við Copenhagen Business School og byrjaði fljótlega eftir að ég kom út að vinna hjá 66° Norður. Þau voru þá að opna sína fyrstu verslun hér og tók ég þátt í uppbyggingu á henni. Ég vann fyrir fyrirtækið frá ársins 2014 til ársins 2018.

Ég byrjaði hjá By Malene Birger árið 2019 í markaðsdeildinni og í kjölfarið var mér svo boðin vinna við að leiða hluta af stafrænni markaðssetningu og ég færði mig af þeim sökum í upphafi árs 2020 yfir í stafræna (e. Ecommerce) teymið.

Það var ekki upphafleg áætlun mín að ílengjast í Kaupmannahöfn, en borgin er frábær að búa í og okkur líður öllum mjög vel hér. Sem er ástæða þess að við erum hér og verðum um óákveðinn tíma.“

Hún segir Kaupmannahöfn heimilislega stórborg.

„Það er mikið að gerast. Borgin er líklega heitasti staðurinn í heiminum í dag í matarmenningu og hún hefur ríka menningar- og listasögu. Að sama skapi verður borgin aldrei yfirþyrmandi.

Eins finnst mér alveg ótrúlega þægilegt að geta farið nánast allt gangandi eða hjólandi. Við fjölskyldan búum til að mynda í „þorpi“ á Vesterbro, þar sem vinnan okkar og leikskóli barnanna er í nokkurra kílómetra radíus.“

Velur gæði fram yfir magn

Laufey segir ýmislegt að læra af tískunni.

„Fyrir mér er það augljóst að tískuiðnaðurinn þarf að taka stefnuna frá fatnaði sem er gerður í hraði (e. fast fashion) og ráðlegg ég öllum að eiga frekar færri gæðaflíkur sem hægt er að nota í mörg ár, hvort sem þær eru keyptar notaðar eða nýjar. Við erum markvisst að vinna að því að framleiðslan sé eins sjálfbær og hægt er.“

Íbúðin sem fjölskyldan býr í er falleg með svalir sem snúa í suður sem gerir gæfumuninn að hennar sögn.

„Í fimm mánuði ársins er hægt að vera úti á svölunum. Við blöndum klassískri hönnun við hluti sem okkur finnst skemmtilegir eða praktískir.“

Hún segir hugmyndina á bak við að læra viðskiptafræði og fatahönnun alltaf hafa verið þá að vera betur í stakk búin til að stofna sitt eigið vörumerki.

„Í augnablikinu finnst mér dásamlegt að vinna fyrir og læra af öðrum og sé ekki fram á að breyta því í bráð. Sigríður Vigfúsdóttir tengdamamma mín og Vigfús Rúnarsson kærastinn minn hafa síðustu ár staðið að þróun og uppbyggingu íslenska vörumerkisins ChitoCare Beauty og ég hef lært mikið af þeim af því að fylgjast með því á hliðarlínunni. Ég hef einnig fengið að vera aðeins með sem hefur vakið meiri áhuga á að byggja eitthvað upp frá grunni sjálf.“

Vigfús Rúnarsson ásamt Laufey Lúðvíksdóttur á fallegum sumardegi í Danmörku.
Vigfús Rúnarsson ásamt Laufey Lúðvíksdóttur á fallegum sumardegi í Danmörku.

Tekur tískuna ekki of alvarlega

Hvað er tíska í þínum huga?

„Tíska á að vera skemmtileg og fyrir alla. Mér finnst mikilvægt að taka hana ekki of alvarlega og treysta sjálfum sér þegar kemur að því að velja sér fallegar flíkur.

Við erum fyrst og fremst að klæða okkur í föt til þess að fullnægja mismunandi þörfum. Mér finnst fólk eiga að klæða sig í föt sem lætur því líða vel og þegar fólki líður vel þá skín það í gegn.“

Spurð um vörurnar í snyrtibuddunni segir Laufey að hún noti mest vörur frá ChitoCare beauty.

„Ég er með andlitskremið og serum frá ChitoCare Beauty. Anti-Aging Repair-serumið er ekki komið á markað en kemur í lok mánaðarins. Ég nota það bæði kvölds og morgna. Ég nota felara frá Nars og kinnalit sem ég skilgreini sem nauðsynjavörur þegar maður er með tvo litla stráka sem eiga það til að vilja fara á fætur á mjög svo ókristilegum tíma.

Ég er einnig með ilmvatnið mitt, Tobacco Vanille frá Tom Ford, í snyrtibuddunni. Ilmvatnið nota ég daglega.“

Laufey segir fataskápinn sinn frekar einfaldan.

„Ég er með stóran jakka (e. oversized blazer), stuttermaboli, gallabuxur og góða skó, þar sem ég fer allt gangandi eða á hjóli. Mér finnst mikilvægt að minnka fatasóun og reyni því að hugsa mig vel um áður en ég bæti í fataskápinn.“

Íslendingar þekkja By Malene Birger-vörumerkið og er það í uppáhaldi …
Íslendingar þekkja By Malene Birger-vörumerkið og er það í uppáhaldi hjá mörgum á Íslandi.
By Malene Birger vörurnar eru vinsælar víða.
By Malene Birger vörurnar eru vinsælar víða.
Það er huggulegt um að lítast í höfuðstöðvum By Malene …
Það er huggulegt um að lítast í höfuðstöðvum By Malene Birger.
Laufey kann einstaklega vel við sig út í Danmörku.
Laufey kann einstaklega vel við sig út í Danmörku.
Frá höfuðstöðum By Malene Birger.
Frá höfuðstöðum By Malene Birger.
Fatnaðurinn er í fallegu umhverfi.
Fatnaðurinn er í fallegu umhverfi.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál