„Rokkaraklippingar sem minna á áttunda áratuginn“

Hugrún Harðardóttir er stofnandi og eigandi hárgreiðslustofunnar Barbarella Coiffeur í …
Hugrún Harðardóttir er stofnandi og eigandi hárgreiðslustofunnar Barbarella Coiffeur í miðbæ Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hugrún Harðardóttir er stofnandi og eigandi hárgreiðslustofunnar Barbarella Coiffeur í miðbæ Reykjavíkur. Stofan hefur verið til frá því á haustmánuðum ársins 2014. Hugrún stendur á bak við stólinn að laga hár flesta daga vikunnar ásamt því að sinna börnum og heimili í Vesturbænum.

Sjaldan eða aldrei hefur áherslan verið meiri á fallegar hárgreiðslur, enda landmenn búnir að finna á eigin skinni hvernig er að komast ekki í hárgreiðslu og litun reglulega.

„Það vinsælasta um þessar mundir er svokölluð „Shag“-klipping sem er mjög flott. Það er klipping með miklum styttum og fjaðraða enda. Hún gefur hárinu mjög mikla fyllingu að ofan og skemmtilega hreyfingu. Það er hægt að vera með þessa klippingu í mismunandi síddum en það sem er heitt núna er að hafa hana í millisídd sem er rétt fyrir neðan axlir. Allir geta prófað þetta „lúkk“ en það þarf að sjálfsögðu að taka tillit til þykktar hársins áður. Það þarf að fara varlega í að setja styttur í fíngert og þunnt hár.“

Þykkt hársins ræður síddinni þegar kemur að klippingum með mikið …
Þykkt hársins ræður síddinni þegar kemur að klippingum með mikið af styttum og topp. mbl.is/Pinterest

Fíngert hár þarf öðruvísi meðferð

Hugrún segir línuna flotta hvort sem hárið er krullað eða ekki.

„Ef hárið er rennislétt þá er gott að nota efni sem dregur fram áferðina í línunni þannig að það sé pínu „messí“. Stundum velja konur að vera með topp við þessa klippingu og þá er fallegt að hafa hann fjaðraðan í endana líka. Það er sannkölluð retrórokkaralína.“

Hugrún leggur mikla áherslu á að vernda hárið.

„Ég vil hafa hárið sítt núna.

Hárið á mér er fíngert og ég hef nýlega orðið fyrir hárlosi. Ég legg áherslu á að sápa hárið ekki oftar en einu sinni í viku en nota þó alltaf hárnæringu og mótunarefni fyrir krullurnar. Krullur í hári eru oftast þurrar og úfnar og þá er mikilvægt að takmarka shampónotkun því það þurrkar hárið ennþá meira. Ég er að prófa mig áfram með Davines-hárvörurnar í Curly Girl Method og hef fundið út að ég næ krullunum æðislegum með þremur vörum frá Davines sem eru grænar og leyfilegar í CGM (e Curly Girl Method). Það er Authentic-shampó, Replumping-næringin og Medium hold modeling-gelið.“

Uppáhaldsvörurnar hennar Hugrúnar styðja við Curly Girl Method - þar …
Uppáhaldsvörurnar hennar Hugrúnar styðja við Curly Girl Method - þar eð aðferð sem ýkir upp krullur í hárinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jarðlitir vinsælir í hárið í sumar

Hárlitirnir í sumar eru jarðtónar með fallegri dýpt í bland við ljósa tóna.

„Það er alltaf gaman að fá sér aðeins ljósara hár yfir sumarmánuðina.“

Taka þarf tillit til heilbrigðis hársins, áferðar þess og þykktar þegar ákveðið er hversu sítt hárið á að vera.

„Ekki reyna að halda í slitin strá bara til þess að vera með nokkur síð hár. Þá er alltaf fallegra að fara í styttra hár.

Ef hárið er í góðri rækt og þykkt þá er hægt að leyfa sér að vera með sítt hár.

Ég mæli samt ekki með hári niður á rass. Það eru engar líkur á að það geri eitthvað fyrir andlitið og er þá eflaust oftast bara í tagli eða snúð.“

Það ættu allir að gera einhverjar breytingar á hárinu fyrir sumarið að hennar mati.

„Það er hægt að breyta bæði lit og klippingu hársins. Það er bara svo skemmtilegt og afgerandi að bjóða þannig nýja árstíð velkomna. Svo þarf auðvitað að huga sérstaklega að ástandi hársins ef breytingar verða á háttum eins og meira sund og meiri sól. Þá er nauðsynlegt að nota „leave in“-næringu eða olíu með sólarvörn sem vinnur á móti skaðanum á hárinu. Eins er frábært að venja sig á að nota djúpnæringu tvisvar til fjórum sinnum í mánuði.“

Hugrún væri með millisítt hár með topp ef hún væri …
Hugrún væri með millisítt hár með topp ef hún væri ekki að leyfa hárinu að vaxa með náttúrulegu sniði núna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hárbönd vinsæl í sumar

Hugrún er hrifin af Davines-hárvörum og telur að allir geti fundið sínar hárvörur frá þeim.

„Þegar kemur að fylgihlutum í hárið þá er tískan undir áhrifum frá sjöunda áratugnum í hárskrauti. Til að ná því útliti má nota klúta og borða við flatan topp og háan hnakka hvort sem hárið er slegið, uppsett eða í tagli.

Ég tel hárið mjög mikið tjáningarform og stóran hluta af persónueinkennum fólks. Svo af hverju ekki að láta hárið vera hluta af því hvernig maður vill vera séður.“

Hugrún vinnur daglega að því að halda sínu eigin hári heilbrigðu.

„Það er ekki svo mikil vinna. Það er gott fyrir hárið að fá að vera í friði fyrir utan næringarböð og mótunarefni.

Mig langar stundum að lýsa hárið mitt meira en ég geri en það þolir illa lýsingu og brotnar auðveldlega. Eins eru hitajárn og mikill blástur oft álag líka sem ég sleppi nánast alveg.“

Rokkað hár með syttur og topp er tíska sem er …
Rokkað hár með syttur og topp er tíska sem er vinsæl í dag. mbl.is/Pinterest

Aldamótagreiðslan vinsæl hjá yngra fólki

Ef Hugrún væri ekki með hárgreiðsluna sem hún er með núna þá fengi hún sér aftur topp og millisítt hár með styttum.

„Fyrir utan rokkaraklippingar sem minna á áttunda áratuginn og túberaða hnakka með hárböndum sem minna á sjöunda áratuginn þá hefur verið vinsælt hjá yngri kynslóðum að lita hárbandið fremst við andlitið í mismunandi litum. Hárið er þá oftast lýst og skipt í miðju alveg eins og þegar ég var fimmtán ára eða í kringum 1999.“

Hugrún sameinar áhugamál og vinnu með því að vinna á …
Hugrún sameinar áhugamál og vinnu með því að vinna á stofunni sinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Millisítt hár og toppur er hárgreiðsla sem fer mörgum.
Millisítt hár og toppur er hárgreiðsla sem fer mörgum. mbl.is/Pinterest
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál