Hælaskór í stíl við bílinn hans afa

Hertoginn og hertogaynjan af Cambridge mættu á bifreið sem Filippus …
Hertoginn og hertogaynjan af Cambridge mættu á bifreið sem Filippus prins átti. AFP

Það leikur enginn vafi á því að Katrín hertogaynja reynir að tengja fatastílinn sinn við konungsríkið. Það kom berlega í ljós í vikunni þegar hún og hertoginn af Cambridge heimsóttu Skotland.

Katrín hertogaynja klæddist köflóttum rykfrakka frá breska tískuhúsinu Holland Cooper. Svona rykfrakki er falur á veraldarvefnum fyrir 145 þúsund krónur.

AFP
Katrín hertogaynja skartaði grænum flauelsskóm frá Manolo Blahnik
Katrín hertogaynja skartaði grænum flauelsskóm frá Manolo Blahnik AFP
AFP

Sem virðingarvottur við afa Vilhjálms, prins Filippusar, sem lést í apríl þá 99 ára, óku hertoginn og hertogaynjan af Cambridge um á gömlum Land Rover sem var í eigu Filippusar heitins. Katrín kórónar svo lúkkið sitt með grænum Manolo Blahnik-hælum í stíl við litinn á Land Rovernum.

AFP

Það var létt yfir þeim, Kata var með hárið í lausu tagli og Villi slakur án bindis. Þau nutu sín vel án grímu og gaman að sjá aftur brosið þeirra. Hertogaynjan af Cambridge var með eyrnalokka sem eru í eigu ömmu gömlu.

Vilhjálmur á léttu nótunum og Kata skemmtir sér
Vilhjálmur á léttu nótunum og Kata skemmtir sér AFP
Katrín hertogaynja skartaði eyrnalokkum í eigu tengaömmu, Elísabetar Bretlandsdrottningar.
Katrín hertogaynja skartaði eyrnalokkum í eigu tengaömmu, Elísabetar Bretlandsdrottningar. AFP

Hjónin fóru meðal annars á seglhjól á strönd nálægt Sankti Andrews-háskólanum, þar sem þau kynntust fyrst fyrir 20 árum. Eftir seglhjólaævintýrið fengu þau sér fisk og franskar á vinsælum skyndibitastað við ströndina sem þau heimsóttu oft sem háskólanemar.

Vilhjálmur einbeittur á seglhjóli
Vilhjálmur einbeittur á seglhjóli AFP
Katrín hertogaynja fór á flug
Katrín hertogaynja fór á flug AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál