Í tveggja milljóna króna samfestingi

Kylie Jenner í samfestingi frá Gianni Versace sem var í …
Kylie Jenner í samfestingi frá Gianni Versace sem var í sumarlínu Versace árið 1992. Skjáskot/Instagram

Athafnakonan Kylie Jenner stal senunni í tekílaboði systur sinnar Kendall Jenner á föstudagskvöldið síðastliðið. Þar klæddist Kylie samfestingi sem kostar 18 þúsund bandaríkjdali eða um 2,2 milljónir íslenskra króna.

Samfestingurinn er frá Gianni Versace og er með löngu opnu hálsmáli. Reimar eru í hálsmálinu til að halda flíkinni saman. Samfestingurinn var nýlega á uppboði á 1stDibs og þar seldist hann á 18.200 bandaríkjdali. 

Hann er vintage-hönnun og er úr sumarlínu Gianni Versace frá árinu 1992. Við samfestinginn var Kylie með Versace-veski og í svörtum hælum frá Versace.

Kylie klæddist samfestingnum í tekílaboði systur sinnar.
Kylie klæddist samfestingnum í tekílaboði systur sinnar. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál