Þetta þarftu að gera áður en þú gengur í hjónaband

Harry og Meghan voru glæsileg þegar þau gengu í hjónaband …
Harry og Meghan voru glæsileg þegar þau gengu í hjónaband á sínum tíma. AFP

Rannveig Hrönn Brink, markaðsstjóri Icepharma, er með nokkur góð ráð til þess að láta húðina líta sem best út á brúðkaupsdaginn. Hún mælir með því að fólk byrji að huga að húðinni 6-9 mánuðum fyrir brúðkaupsdaginn. 

6-9 mánuðir til stefnu

„Á þessum tímapunkti hentar vel að byrja að nota retinól sem er A-vítamín sem dregur úr hrukkum og ójöfnum í húð. Retinól er sterkt efni og ber að nota gætilega. Gott er að byrja á vörum úr Correct-línunni, Comprehensive retinol night serum og Comprehensive retinol eye cream. Þessi retinól-tvenna, sem inniheldur 0,3% styrkleika af retinóli, er borin á hreina húð á kvöldin og fylgt eftir með góðu rakakremi. Við mælum með að byrja einu sinni til tvisvar í viku og vinna sig upp í daglega notkun, eða eins og húðin þolir. Þegar húðin er farin að þola retinólið vel er hægt að færa sig yfir í Retinol repair complex sem tilheyrir Skin Active-vörulínunni, það krem inniheldur 0,5% styrkleika af retinóli og hentar best þroskaðri húð, 35 ára og eldri,“ segir Rannveig.

3-6 mánuðir til stefnu

„Hér er gott að koma sér upp húðrútínu sem fylgt verður næstu mánuðina. Kvölds og morgna er nauðsynlegt að hreinsa húðina áður en krem eru borin á. Restore – Facial Cleanser og Skin Active – Exfoliating wash eru báðir mjög áhrifaríkir hreinsar sem innihalda hvorki sápu né ilmefni, henta öllum húðgerðum og hreinsa húðina og fjarlægja farða án þess að raska eðlilegri húðfitu. Clarify – Mandelic clarifying cleanser hentar feitri og bólóttri húð sérstaklega vel,“ segir hún og mælir með að setja serum undir dag- og næturkrem til að auka virkni kremanna. Hún mælir líka með því að nota augnkrem kvölds og morgna.

„Augnkrem gefa augnsvæðinu góðan raka og draga úr þurrki og fínum línum í kringum augun og gera viðkvæma húðina í kringum augnsvæðið bústnari og þéttari. Okkar allra besta augnkrem er Skin Active – Intensive eye therapy sem hentar þroskaðri húð. Fyrir yngri húð mælum við með Restore – PHA eye cream. Correct – Comprehensive retinol eye cream er svo tilvalið til að nota áfram á kvöldin,“ segir hún og bætir við: „Til að toppa húðrútínuna fyrir stóra daginn mælum við með Skin Active – Triple firming neck cream. Hálskrem sem dregur úr sýnilegum einkennum öldrunar á hálsi og bringu. Húðin verður stinnari, þéttari og húðlitur verður jafnari.“

0-3 mánuðir til stefnu

„Það er mjög mikilvægt á þessum tímapunkti að vera ekki að breyta húðrútínunni mikið og alls ekki prófa ný krem. Hugið vel að raka húðarinnar með góðum serumum og rakakremum og verið dugleg að drekka vatn,“ segir hún.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál