Þetta er efnið sem fullkomnar förðunina

Söngkonan Doja Cat á MTV tónlistarverðlaununum 2020.
Söngkonan Doja Cat á MTV tónlistarverðlaununum 2020. AFP

Næst þegar þú dáist að ferskri húð og ómáluðu og náttúrulegu andliti skaltu hafa í huga að það eru góðar líkur á að að baki þessu útliti liggi einn ef ekki tveir góðir primerar.

Einn þeirra vinsælustu um þessar mundir er frá japanska snyrtivörumerkinu Shiseido og kallast Synchro Skin Soft Blurring Primer. Hann hefur ratað í ýmsar umfjallanir síðasta árið og aðalsnyrtipenni breska dagblaðsins Guardian, Fummi Fetto, sem á dögunum tók saman þær snyrtivörur sem hún notar til að fá sitt „náttúrulega“ og „ómálaða“ útlit, hafði primerinn góða þar efst á lista.

Við á Smartlandi erum mjög sammála henni Fetto í þeim efnum. Stjörnurnar hafa líka uppgötvað primerinn en förðunarmeistari bandarísku rappsöngkonunnar Doja Cat, sem er að gera allt vitlaust, deildi því með E Online! að á síðustu Grammyverðlaunahátíð hefði primerinn átt stóran þátt í vel heppnaðri förðun Doja Cat á rauða dreglinum.

Primerinn lítur örlítið út eins og UHU-límið í skólaföndrinu í gamla daga en þegar hann berst á andlitið er eins og yfir það leggist þunn slæða sem mýkir áferð húðarinnar, býr til jafnt undirlag fyrir farða og lætur hann endast lengur. Hann mattar örlítið og er sérlega góður fyrir húð sem er með opnar húðholur.

Shiseido Synchro Skin Soft Blurring Primer gefur mikinn raka og …
Shiseido Synchro Skin Soft Blurring Primer gefur mikinn raka og á stóran þátt í því að förðunin verður fallegri.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál