Fegurðarleyndarmál Helga Ómars

Helgi Ómarsson er á því að karlmenn þurfi að huga …
Helgi Ómarsson er á því að karlmenn þurfi að huga að húðinni sinni með góðum húðvörum.

Helgi Ómarsson er maður sem vill hafa nóg á sinni könnu. Hann starfar sem ljósmyndari, gerir hlaðvarpsþætti um helgar og síðan er skartgripalína hans í samvinnu við Dagmar Mýrdal, 1104 by Mar, að slá í gegn um þessar mundir. 

Mar Studio er markaðsstúdíó og ráðgjafarfyrirtæki sem býr til efni og stefnu fyrir fyrirtæki. Eins hefur vinna mín í samvinnu við fyrirtæki á netinu tekið drjúgan tíma. Þrátt fyrir það þá reyni ég að passa rosalega vel upp á húðina mína. Ég er að verða þrítugur og húðin að byrja að bera merki þess.“

Húðin er farin að eldast

Það sem hefur alltaf verið mikilvægt fyrir Helga er að fara að sofa með hreint hárið.

„Hársprey og hárvax fer ekki vel með húðina á koddaverinu. Ég þríf alltaf á mér húðina á kvöldin og nota húðhreinsivörur frá Clinique Men, Skin-Regimen og La Mer. Eins mikið og mig langar að þrífa húðina á morgnana þá er ég ekki morgunhani svo rakakrem er það eina sem fer á húðina þá. Svo finnst mér algjörlega nauðsynlegt að nota sólarvörn daglega. Það er alveg magnað að sjá muninn á húðinni eftir að ég byrjaði að nota sólarvörn. Ég vil þó kalla þetta húðvörn og hvet alla til að nota hana allan ársins hring. Ég drekk einnig alltaf „power boost“ á morgnana hlaðið hampfræjum og grænu gulli og tek mjög mörg vítamín. Húðvítamínin eru Hair Skin and Nails frá Chitocare, kollagenið frá Iceherbs og hampfræolía í töfluformi.“

Helgi Ómarsson þrífur húðina á kvöldin með húðhreinsivörur frá Clinique …
Helgi Ómarsson þrífur húðina á kvöldin með húðhreinsivörur frá Clinique Men, Skin-Regimen og La Mer

Hvaða krem notarðu daglega?

„Ég nota alltaf sólarvörn en mín sólarvörn er frá Clinique Men og heitir Super Energizer SPF 40. Ég nota einnig rakakremin frá Clinique Men og flakka á milli Moisturizing Lotion og Anti Age Moisturizer. Á sparidögum nota ég rakakremið fræga frá La Mer. Á kvöldin ber ég á mig allskonar krem. Ég set alltaf á mig serum á kvöldin. Anti Aging Repair-serumið frá Chitocare er að koma gríðarlega sterkt inn núna. Það er glænýtt og fær fullt hús stiga frá mér. Ég get einnig mælt með BioEffect-seruminu, The Concentrate frá La Mer, Retinol frá SkinCeuticals og Night Detox frá SkinRegimen. Mér finnst æðislegt að nota krem á kvöldin áður en ég leggst á koddann og telja mér trú um að ég vakni yngri.“

Brúnkukrem er einnig fyrir karlmenn

Eiga karlar ekki að nota snyrtivörur til jafns við konur?

„Jú algjörlega. Mér finnst það að passa upp á húðina sína mjög kynlaust. Að hugsa um húðina er eitt form þess að hugsa um sig og taka tíma fyrir sig og líta vel út.

Það er hægt að fá meira sjálfstraust með því að passa vel upp á húðina og á það ekki síst við karlmenn.

Í raun tel ég karlmenn spá alveg jafn mikið í krem og konur. Þeir setja á sig brúnkukrem til dæmis og eru orðnir miklu opnari að setja á sig hyljara eða bólufelara. Það finnst mér frábært. Ég fæ endalaust mikið af spurningum á Instagramminu mínu hvað á að kaupa eða hvað hægt sé að gera. Að líta vel út að utan er líka að líða vel að innan.“

Hvaða ilm notar þú?

„Ég nota nokkra. Ég notaði einu sinni alltaf bara einn en núna fer það eftir skapi.

Sauvage og Homme frá Dior eru hversdagsilmirnir mínir. Svo er Tom Ford Noir de Noir og Super Cedar frá ByRedo aðeins meira spari. Svo var ég að uppgötva íslenska fyrirtækið Fischer þegar ég var að skoða mig um í Rammagerðinni. Það eru guðdómlegir ilmir einnig!“

Helgi notar herravörurnar frá Clinique.
Helgi notar herravörurnar frá Clinique.

Velur sér náttúrulega liti í klæðnaði

Áttu leyndarmál er tengist hárinu sem þú ert til í að deila með okkur?

„Að blása hárið er að sjálfsögðu mikið baks. Strákar gleyma því oft.

Þess vegna er maður alltaf svona ógeðslega sætur eftir klippingu og svo nær maður aldrei að hafa það jafn fínt eftir á. Kannast ekki allir við það? Svo er það svo ótrúlega mismunandi. Ég til dæmis get ekki verið sætur með hár á hliðunum þó ég mundi reyna það. Svo ég þarf alltaf að hafa það vel snyrt og klippt. Ég hef oftar en einu sinni verið örvæntingarfullur og reynt að raka það sjálfur rétt fyrir teiti eða einhvern viðburð og þá verið eins og kjáni.

Að fara í klippingu er einnig form af sjálfsdekri. Það er alltaf gott fyrir sjálfstraustið.“

Hvað er í snyrtitöskunni þegar þú ferð í ræktina?

„Ég læt mér nægja rakakrem og svitalyktareyði. En ég nota Dior Sauvage.“

Hvernig lýsir þú þínum eigin fatastíl?

„Mér hefur aldrei tekist að lýsa honum. Ég er mikill tvíburi. Ég vil vera í stórum fötum eða bara vel sniðnum fötum. Ég klæðist náttúrulegum litum. Þú sérð mig sjaldan í sterkum litum. Svo ætli það sé ekki sannleikanum samkvæmt að segja að fatastíllinn minn sé svolítið tvíburalegur.“

Hollt mataræði hefur áhrif á húðina

Hefur mataræðið áhrif á útlitið?

„Jenna á Húðlæknastöðinni er minn gúru þegar kemur að húð og hlusta ég alltaf á Húðkastið sem hún stýrir. Hún vill meina að það hafi ekki endilega afgerandi áhrif en þó einhver. Ég allavega sturta í mig hampfræolíu, drekk mikið af vatni og borða eins mikið grænt og ég get komið ofan í mig. Ég er svo sem alveg sammála því að það hafi ekki afgerandi áhrif en ég held að öll óhollusta sýni sig á útlitinu. Hvort svo sem það er ruslfæði, sígarettur eða alkóhól. Holl fæða gerir okkur gott á öllum sviðum og ég hef það í huga alltaf.“

Helgi mælir með því við alla að huga að húðinni og þá sér í lagi að huga að húðvörnum.

„Ég nota mjög rakagefandi húðvarnir og gef húðinni minni góðan tíma. Það er mjög heilandi.

Við lifum á svo miklum hraða og því er svo mikilvægt að nýta allskonar stundir fyrir okkur sjálf og í hluti sem gefa okkur andlegan ávinning.“

Nærandi húðkrem frá Clinique.
Nærandi húðkrem frá Clinique.
Það getur verið góð hugmynd að hreinsa bæði hár og …
Það getur verið góð hugmynd að hreinsa bæði hár og húðina fyrir vefninn í sturtunni.
Ilmurinn Sauvage frá Dior. Sauvage er í uppáhaldi hjá Helga …
Ilmurinn Sauvage frá Dior. Sauvage er í uppáhaldi hjá Helga um þessar mundir.
Homme frá Dior er ilmur sem Helgi notar daglega.
Homme frá Dior er ilmur sem Helgi notar daglega.
Ilmurinn Sauvage frá Dior er engum líkur.
Ilmurinn Sauvage frá Dior er engum líkur.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál