Eftir langa þurrkatíð á rauða dreglinum skörtuðu stjörnurnar sínu fínasta pússi á opnunarkvöldi kvikmyndahátíðarinnar í Cannes á þriðjudaginn. Fyrirsætan Bella Hadid var meðal þeirra best klæddu en tvær konur mættu í páskagulum kjólum. Hátíðin fór ekki fram í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins.
Hvíti kjóllinn sem Hadid klæddist var klassískur og kvenlegur. Svart slörið gerði hann dramatískan og gerði það að verkum að vera fyrirsætunnar fór ekki fram hjá neinum. Kjóllinn er gömul hönnun frá Jean Paul Gaultier. Svarta efninu mun hins vegar hafa verið bætt við eftir á fyrir kvöldið.
Þegar Helen Mirren valdi kjól fyrir kvöldið var markmiðið ekki að falla inn í fjöldann. Hún var klædd í gulan síðerma kjól frá Dolce & Gabbana.
Mirren var þó ekki eina stjarnan sem ákvað að mæta í gulu. Áhrifavaldurinn Farhana Bodi var líka í gulu en hennar kjóll var öllu fyrirferðarmeiri en kjóll Mirren.
Hér fyrir neðan má sjá þær stjörnur sem einnig voru áberandi á rauða dreglinum.