Júlía klæðir sig eins og rokkstjarna

Júlía Grönvaldt Björnsdóttir er mikill tískuspekingur og leyfir tískustraumum ekki …
Júlía Grönvaldt Björnsdóttir er mikill tískuspekingur og leyfir tískustraumum ekki að stýra för. mbl.is/Árni Sæberg

Júlía Grönvaldt Björnsdóttir er óhrædd við að blanda saman ólíkum mynstrum, flíkum og efnum þegar kemur að fatavali. Hún lærði fashion communication í listaháskóla í Flórens á Ítalíu en í dag vinnur hún hjá Hildi Yeoman og starfar sem stílisti samhliða því. 

Þegar Júlía bjó á Ítalíu þræddi hún alla fatamarkaði sem hún fann, enda í mekku tískunnar, og fann þar marga dýrmæta gripi.

Júlía setur sér engar reglur þegar kemur að því að velja saman föt og stíll hennar er mjög frjálslegur. „Ég fæ innblástur frá stórum karakterum og persónuleikum sem eru óhrædd við að klæðast einhverju öðruvísi og hugsa út fyrir kassann. Tónlistarmenn og listamenn eru þeir karakterar sem ég fylgist með þegar kemur að stíl því mér finnst þau mest skapandi í klæðaburði og óhrædd við að prófa eitthvað nýtt. Mér finnst það viðhorf vera mikilvægt til að þróa minn eigin persónulega stíl og ég vil helst klæða mig eins og rokkstjarna,“ segir Júlía.

Júlía lærði í listaháskóla í Flórens á Ítalíu. Hún nýtti …
Júlía lærði í listaháskóla í Flórens á Ítalíu. Hún nýtti tímann á Ítalíu vel og þræddi þar markaði og búðir í leit að dýrgripum, sem hún svo sannarlega fann. mbl.is/Árni Sæberg

Hún segist vera mjög heppin með það að hafa gott sjálfsöryggi og klæðist því hverju sem hana langar til klæðast. Það sem hún fílar mest eru litríkar flíkur.

„Ég elska að finna eitthvað öðruvísi og litríkt eða með fallegri áferð, ég lærði um tísku í námi á Ítalíu og er því með gott auga fyrir fallegum eða sjaldgæfum flíkum. Þau ár sem ég bjó úti þræddi ég alls konar fatamarkaði, þar sem Ítalía er klárlega mekka tískunnar, og var ég svo heppin að fá að sjá með eigin auga alls konar flíkur og fell ég því helst fyrir sjaldgæfri og fallegri hönnun,“ segir Júlía.

Kjólinn fékk hún í Extraloppunni og kápuna keypti hún í …
Kjólinn fékk hún í Extraloppunni og kápuna keypti hún í Zöru á Ítalíu. Stígvélin eru úr vintage búð á Ítalíu. mbl.is/Árni Sæberg

Sneri baki við tískustraumunum

Hún segir tískustraumana ekki vera fyrir sig en hefur mikinn áhuga á að fylgjast með straumum og stefnum tískunnar. „Mér finnst mjög mikilvægt fyrir sjálfa mig að snúa baki við tískustraumum og fylgja frekar mínu eigin innsæi í klæðaburði. Þar sem ég hef mikinn áhuga á tísku og stíl er auðvelt fyrir mig að þróa eigin persónulega stíl burtséð frá tískustraumum og þar af leiðandi verður stíllinn minn klassískari og tímalausari, sem er að miklu leyti mjög sjálfbært viðhorf,“ segir Júlía.

Vinatge veski frá Prada sem Júlía fann á markaði á …
Vinatge veski frá Prada sem Júlía fann á markaði á Ítalíu. mbl.is/Árni Sæberg

Dagsdaglega klæðir hún sig yfirleitt í litrík föt og er með mikið af skarti. Það getur þó farið eftir í hvaða skapi hún er hvern daginn. Þegar hún fer eitthvað fínt er hún hrifin af því að klæðast kjólum og fallegum hælum eða stígvélum við. Það er þó aldrei langt í pönkarann og á hún það til að pönka upp fötin.

Aðspurð hver séu verstu fatakaupin segir Júlía þau líklegast vera þegar hún hefur keypt sér eitthvað til að reyna að falla betur í hópinn. „Ég er alveg sek um það að hafa keypt eitthvað bara af því allir aðrir ættu það,“ segir Júlía. Bestu fatakaupin eru hins vegar allar þær flíkur sem hún fann á mörkuðum eða í búðum á Ítalíu. „Það eru flíkur sem ég mun geyma að eilífu.“

Júlía klæðir sig eftir því hvaða skapi hún er í …
Júlía klæðir sig eftir því hvaða skapi hún er í hvern daginn en er yfirleitt í litríkum fötum. mbl.is/Árni Sæberg

Fataskápurinn eins og skjalasafn

Júlía segist vera mikill safnari og að í fataskápnum hljóti eflaust að leynast einhver tískuslys. Henni finnst þó mikilvægt að varðveita þessi mögulegu slys, enda engu hent úr góðu skjalasafni sem er í senn góð tískuskrásetning.

Þegar Júlía er spurð hvort það sé eitthvað sem hún myndi aldrei klæðast segir hún að það sé verulega fátt. Það væri hins vegar mjög sjaldgjæft að sjá hana í svörtu frá toppi til táar.

Hvíta skyrtan er úr Extraloppunni og vestið úr Hringekjunni. Hringarnir …
Hvíta skyrtan er úr Extraloppunni og vestið úr Hringekjunni. Hringarnir eru flestir af mörkuðum á Ítalíu. Júlía hendir aldrei neinu skarti sem hún kaupir svo hún á orðið stórt safn. mbl.is/Árni Sæberg

Hvar kaupir þú helst föt, skó og fylgihluti?

„Hér á Íslandi kaupi ég helst fötin mín, skart og skó í Fatamarkaðnum við Hlemm, Spúútnik, nytjamörkuðum, loppubúðum og Rauða krossinum.“

Áttu þér uppáhaldsmerki?

„Ég hef mjög gaman af því að fylgjast með ungum fatahönnuðum í London t.d. og tískuhúsunum á Ítalíu. En uppáhaldsmerkin mín eru klárlega Comme Des Garcon, Margiela og Rick Owens. Ég hef fylgst með þeim hönnuðum síðan ég byrjaði að hafa áhuga á tísku því þau eru framúrstefnuleg og hafa stigið risastórt fótspor í tískumenninguna.

Leðurólin með keðjunni er úr vintage búð í Flórens. Stígvélin …
Leðurólin með keðjunni er úr vintage búð í Flórens. Stígvélin eru frá Asos og taskan úr Kolaportinu. mbl.is/Árni Sæberg
Stígvélin keypti hún á markaði í Flórens.
Stígvélin keypti hún á markaði í Flórens. mbl.is/Árni Sæberg
Kjólinn fékk Júlía í Extraloppunni og jakkinn er af fatamarkaðnum …
Kjólinn fékk Júlía í Extraloppunni og jakkinn er af fatamarkaðnum við Hlemm. Sólgleraugun eru frá Gianni Versace. mbl.is/Árni Sæberg
Sólgleraugun eru frá Asos.
Sólgleraugun eru frá Asos. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál