Þórunn er með öll trixin á hreinu

Söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir hugsar vel um heilsuna og húðina. Hún leggur mikla áherslu á að nota lífrænar húðvörur, elskar að þurrbursta á sér húðina og finnst fátt betra en að fara í húðmeðferðir. Besta bjútítrix allra tíma að hennar mati er að hrósa kynsystrum sínum og bera sig ekki saman við þær.

„Ég reyni að hugsa mjög vel um húðina, sérstaklega í seinni tíð. Ég nota alltaf góð næringarrík krem og olíur bæði á andlit og líkama en ég er mikil áhugamanneskja um húðumhirðu. Húðin er svo mikilvægur þáttur í heilsu okkar og líðan. Einnig er mjög mikilvægt að hugsa vel um hana að innan, næra sig vel og drekka vel af vatni. Svo er þurrburstun líka snilld og ég elska allar húðmeðferðir,“ segir Þórunn þegar hún er spurð hvernig hún hugsi um húðina.

Hvað finnst þér skipta mestu máli í húðumhirðu?

„Að finna vörur sem passa minni húðgerð og ég persónulega finn mikinn mun á hvernig húðin verður af alls konar mat og röngum innihaldsefnum.“

Hvað skipir þig mestu máli þegar þú velur þér húðvörur?

„Þegar kemur að líkamsvörum, tannkremi, svitalyktareyði og olíum finnst mér skipta máli að vörurnar séu lífrænar. Það sem ég ber á húðina fer djúpt inn í hana og þar af leiðandi inn í blóðrásina. Þess vegna vel ég til dæmis dr.organic því það eru lífrænar vörur. Ég nota til dæmis svitalyktareyði frá dr.organic en þeir eru án allra kemískra efna, svo finnst mér Charcoal-tannkremið mjög gott. Ég fór fyrst að hugsa mikið um hvað ég set á húðina þegar ég var ólétt og með barn á brjósti því það sem við berum á húðina fer inn í allt kerfið.“

Uppáhaldssnyrtivaran?

„E-vítamínolían frá dr.organic er svo mikil snilld. Ég kynntist henni fyrst þegar ég bjó í London og setti hana á unglingabólur sem hreinlega hurfu og ég notaði hana bæði á slit sem ég fékk á meðgöngu og sérstaklega mikið á keisaraörin mín. Hún er algjör galdur og svo eru Lancôme-varalitir líka í miklu uppáhaldi.“

Hvert er besta bjútítrix allra tíma?

„Að vera góð við aðrar konur og hrósa þeim. Sýna sjálfum sér mildi og aldrei bera sig saman við aðra! Svo auðvitað að brosa.“

Borðar þú einhvern sérstakan mat til þess að vera betri í húðinni?

„Já, ég verð hræðileg í húðinni af mjólkurvörum og sleppi þeim alveg því meltingin verður hræðileg af mjólk og hveiti. Ef þarmaflóran er í ruglinu lætur húðin okkur vita um leið, það er svo merkilegt að læra að hlusta á líkamann. Engifer er mjög gott fyrir húðina, lárperur og allur grænn djús. Svo sama gamla góða ráðið; nóg af vatni.“

Hugsarðu öðruvísi um húðina á sumrin en á veturna?

„Já, ég er duglegri að nota sólarvörn á sumrin en á veturna reyni ég bæði að nota feitari krem og borða meiri fitu til að húðin þorni ekki upp.“

Hvað er að finna í snyrtibuddunni þinni?

„Ég er alltaf með haug af snyrtivörum með mér. Svitalyktareyði, andlitskrem, maskara, sólarpúður, hyljara og varaliti, helst í björtum litum, því ég elska að vera tilbúin í að gera mig sæta á núll-einni ef tækifærin banka óvænt upp á.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál