Ástrós stal stíl Ingu Sæland

Ástrós Traustadóttir og Inga Sæland eru með eru nota báðar …
Ástrós Traustadóttir og Inga Sæland eru með eru nota báðar hanska innandyra. Samsett mynd

Áhrifavaldurinn og samkvæmisdansarinn, Ástrós Traustadóttir, fór út að borða með öðrum áhrifavöldum á dögunum til þess að fagna afmæli sínu. Ástrós var með eftirtektaverða hanska en svipaða hanska hefur Inga Sæland sést með oftar en einu sinni. 

Ástrós var í svörtum gellubuxum og stuttum langerma jakka. Nælonhanskarnir hennar smellpössuðu við fötin. Hanskar Ingu eru hins vegar úr blúndu en Inga var með þá þegar leiðtogar stjórnmálaflokkana mættust í leiðtogaumræðum í kosningasjónvarpi RÚV í lok ágúst. Inga klæddist hvítum jakka og svörtum bol við hanskana í umræðuþættinum. Inga var líka með hanskana í sjónvarpsþætti Gísla Marteins fyrr á árinu.

Inga Sæland með hanskana í kosningasjónvarpi RÚV í haust.
Inga Sæland með hanskana í kosningasjónvarpi RÚV í haust. Skjáskot/RÚV

Stjórnmálakonan var með armband yfir öðrum hanskanum. Ástrós sýndi skartgripi sína á sama hátt og var með hringa yfir sínum hönskum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál