Frumsýndi kærustuna á galakvöldi

Phoebe Bridgers og Paul Mescal eru nýjasta parið í stjörnuheimum.
Phoebe Bridgers og Paul Mescal eru nýjasta parið í stjörnuheimum. AFP

Írski leikarinn Paul Mescal, sem sló svo eftirminnilega í gegn í þáttunum Normal People, frumsýndi nýju kærustuna á LACMA Art + Film Gala sem haldið var með pomp og prakt í Los Angeles á sunnudag. Sú heppna heitir Phoebe Bridgers og er bandarísk söngkona.

Margt var um manninn á galakvöldinu og allir mættir í sínu fínasta pússi. Verið var að heiðra þá sem hafa skarað fram úr í listaheiminum eins og til dæmis Steven Spielberg, Kehinde Wiley og Amy Sherman.

Miley Cyrus vakti til að mynda mikla athygli í hvítri buxnadragt með blómamynstri frá Balenciaga. Þá vakti Jared Leto athygli fyrir fjaðurskreyttan jakka frá Gucci og slær þar með nýjan tón í herratískunni.

Miley Cyrus var blómleg á galakvöldinu með rokkað hár og …
Miley Cyrus var blómleg á galakvöldinu með rokkað hár og skærbláan augnskugga í anda níunda áratugarins. AFP
Jared Leto vakti athygli í fjaðurskreyttum jakka frá Gucci.
Jared Leto vakti athygli í fjaðurskreyttum jakka frá Gucci. AFP
Bandaríski rapparinn Lil Nas X var líka í fjaðurjakka frá …
Bandaríski rapparinn Lil Nas X var líka í fjaðurjakka frá Gucci líkt og Jared Leto. AFP
Elle Fanning var óaðfinnanleg í kjól frá Gucci en Gucci …
Elle Fanning var óaðfinnanleg í kjól frá Gucci en Gucci var einn af styrktaraðilum hátíðarinnar. AFP
Dramatísk förðunin var upp á tíu hjá Elle Fanning og …
Dramatísk förðunin var upp á tíu hjá Elle Fanning og þótti hæfa kjólnum afar vel. AFP
Hailey Bieber var í stílhreinum hvítum kjól frá Saint Laurent.
Hailey Bieber var í stílhreinum hvítum kjól frá Saint Laurent. AFP
Dakota Johnson var í bleikum buxum og toppi með skrautsteinum …
Dakota Johnson var í bleikum buxum og toppi með skrautsteinum frá Gucci. AFP
Diane Keaton var í dökkblárri pallíettubuxnadragt.
Diane Keaton var í dökkblárri pallíettubuxnadragt. AFP
Kehinde Wiley er litríkur listamaður í litríkum jakkafötum frá Gucci.
Kehinde Wiley er litríkur listamaður í litríkum jakkafötum frá Gucci. AFP
Salma Hayek og eiginmaður hennar François-Henri Pinault voru glæsileg. Hayek …
Salma Hayek og eiginmaður hennar François-Henri Pinault voru glæsileg. Hayek klæddist sérsaumuðum Gucci kjól. AFP
Suki Waterhouse fyrirsæta. Fjaðrir eru greinilega það heitasta frá Gucci …
Suki Waterhouse fyrirsæta. Fjaðrir eru greinilega það heitasta frá Gucci um þessar mundir. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál