Topplaus og töfrandi Billie Eilish

Nýji Billie Eilish ilmurinn kemur út miðvikudaginn 10. nóvember.
Nýji Billie Eilish ilmurinn kemur út miðvikudaginn 10. nóvember. Skjáskot/Instagram

„Ég get ekki beðið eftir að það komist í hendurnar á þér,“ skrifaði tónlistarkonan Billie Eilish við mynd sem hún deildi á Instagram í vikunni. Átti hún við gyllt ilmvatnsglas sem hún hélt þétt upp við andlit sitt en í fyrsta skipti á ferlinum er hún að gefa út ilm í sínu nafni. 

Fleiri samskonar myndir birtust á samfélagsmiðlum ungstirnisins en þær urðu djarfari með hverri myndbirtingunni. Sat Eilish til dæmis berbrjósta fyrir en það verður að teljast nokkuð andstætt við hennar karakter. En hún er þekkt fyrir að klæðast víðum og óvenjulegum fötum.

Ilmvatnsglasið er eins og einhvers konar afsteypa af efri líkamsparti Eilish þar sem mjúkar og fagrar línur kvenlíkamans eru hafðar í forgrunni.   

Myndirnar eru hluti af auglýsingaherferð ilmvatnsins og verður ekki annað sagt en að henni hafi tekist vel til við að vekja athygli á því.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál