Toppur úr gullkeðju og eggjaskór

Elle Fanning hefur vakið athygli fyrir klæðaburð sinn síðustu daga.
Elle Fanning hefur vakið athygli fyrir klæðaburð sinn síðustu daga. Skjáskot/Instagram

Bandaríska leikkonan Elle Fanning mætti í heldur óvenjulegum klæðnaði á InStyle verðlaunahátíðina sem haldin var á Getty safninu í Los Angeles-borg síðastliðið mánudagskvöld.

Toppurinn sem hún klæddist líktist helst risastórri gullkeðju sem var vafinn um efri part leikkonunnar, sem annars var ber. Franski hönnuðurinn Pierre Balmain hannaði toppinn undir tískumerkinu Balmain Paris. Grófar brynjur, gull, málmar og keðjur hafa verið áberandi á tískupöllunum síðustu misseri en þar eru þægindin ekki höfð í fyrirrúmi. 

Elle Fanning vakti einnig athygli fyrir skondinn skóbúnað sinn á dögunum. Birti hún mynd af sér í ljósum, opnum hælaskóm þar sem leit út fyrri að hái hællinn hafi brotið hrátt egg. Við skóna var hún svo í ljósum uppháum og útvíðum buxum, þar sem skálmarnar náðu niður í gólf, og  hvítum hefðbundnum stuttermabol. Aðdáendur hennar hafa brugðist misjafnlega við þessum múnderingum en Hollywood-stjörnur eru tískufyrirmyndir og mega því klæðast hverju því sem hugurinn girnist.

View this post on Instagram

A post shared by Elle Fanning (@ellefanning)

View this post on Instagram

A post shared by Elle Fanning (@ellefanning)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál