Katrín hertogaynja var flott og öðruvísi en vanalega í grænum glitrandi kjól þegar hún mætti ásamt eiginmanni sínum á sýningu í Roayl Albert Hall í Lundúnum á fimmtudagskvöldið. Katrín sem er vanalega með liði og blásið hár var með öðruvísi hárgreiðslu sem vakti mikla lukku.
Katrín var í grænum glitrandi síðkjól frá Jenny Packham en kjóllinn hæfir aðeins afar fínum tilefnum. Hún sást fyrst í kjólnum í opinberri heimsókn í Pakistan árið 2019. Við kjólinn var Katrín með trúlofunarhringinn sinn, giftingahring og eyrnalokka úr gulli frá skartgripamerkinu Missoma sem kosta 125 pund eða um 22 þúsund krónur.
Sérfræðingar sem Daily Mail ræddu við hrósuðu hertogaynjunni fyrir hár og förðun. „Þetta er algjörlega nýtt útlit hjá Katrínu sem við höfum aldrei séð áður,“ sagði stjörnuhárgreiðslumaðurinn Tom Smith um krullurnar sem Katrín var með. Hann segir hárið ekki bara greitt yfir öxlina á afgerandi hátt heldur er áferðin allt önnur en vanalega.
Hárgreiðslumaðurinn segir að Katrín líti út fyrir að vera yngri og vera með meiri orku. Það lítur einnig út fyrir að Katrín sé að breyta ímynd sinni. „Stílistinn hennar hefur notað minna krullujárn og breytt stefnunni á krullunum.“
Það þykir einnig áhugavert að hár Katrínar hafi einfaldlega verið greitt yfir öxlina á hversdagslegan hátt en ekki mótað. Þannig lítur hún út fyrir að vera afslöppuð en ekki stíf.