Með hárkolluherbergi heima hjá sér

Cher er 75 ára og heldur sér vel. Hún hugsar …
Cher er 75 ára og heldur sér vel. Hún hugsar vel um húðina og er nýtt andlit Mac snyrtivörumerkisins. Skjáskot/Instagram

„Ég er ekkert sérstaklega góð í því að vera stjarna. Ég er ekki glæsileg öllum stundum  í raun varla nokkurn tímann,“ segir Cher í viðtali við The Times. Cher, sem er 75 ára, er nýjasta andlit snyrtivörumerkisins Mac. Cher leysir hér frá skjóðunni um það sem hún notast við til þess að viðhalda unglegu útliti.

Tekur augnhárabretti á eyðieyju

„Móðir mín sagði alltaf að ef maður strandaði á eyðieyju þá ætti maður að hafa augnhárabretti með sér. Það er mikilvægast. Ég hef notað augnhárabretti allt mitt líf. Þegar ég er að vinna þá nota ég gerviaugnhár. Dagsdaglega notast ég við mín eigin, sem eru bara nokkuð góð.

Þá er ég alltaf með varagloss og kinnalit í töskunni hvert sem ég fer. Ég er dugleg að skipta um vörur og alltaf að leita að einhverju nýju. Ég er eins og hver önnur kona og held uppi öllum snyrtivörufyrirtækjum. Við erum stöðugt að leita að vörunni sem mun gera okkur fullkomnar og er alltaf rétt handan við hornið.

25 hárkollur sem þurfa stöðugt viðhald

Ég er með hárkolluherbergi heima hjá mér og þar eru um það bil 25 hárkollur. Það þarf að hugsa vel um þær en þær eru mjög viðkvæmar. Það þarf að viðhalda þeim, breyta sniðinu og litnum og svo framvegis. Hárkollur eiga að vera skemmtilegar, og uppi á sviði eiga þær að vera flottar og þægilegar. Uppáhaldshárkollan mín er sú sem er með beint sítt hár niður á rass.

Hugsar vel um húðina

Ég er 75 ára og ekkert allt of ánægð með að vera orðin svona gömul. Ég lít ekkert illa út en hafði ekki áttað mig á hversu vel ég leit út fyrir nokkrum árum. Ég var 60 ára og bara rosalega sterk. Móðir mín er 95 ára og lítur mjög vel út. Hún hefur fallega húð og mikið hár. Við flest þolum hana ekki því hún lítur svo fáránlega vel út. Hún segist sjálf vera 75 ára. Ég leyfi henni það því það gleður hana,“ segir Cher og hlær.

„Ég er með góða húð og hugsa vel um hana. Fer í andlitssnyrtingu annað slagið. Ég þríf húðina með mildum hreinsi fyrir viðkvæma húð og elska svo Clarisonic-húðhreinsiburstann. Ég sef aldrei með farða á mér og er mjög ströng með það. Það kemur samt fyrir að ég vakna á morgnana og lít alveg frábærlega vel út. Þá átta ég mig á því að ég gleymdi að fjarlægja förðunina daginn áður!

Drekkur lítið og borðar hollt

Ég hugleiði, borða hollan mat og stunda líkamsrækt. Ég gaf út líkamsræktarmyndbönd á níunda áratugnum og ég nota þau enn þann dag í dag. Ég held að á meðan ég get gert allar æfingarnar þar þá haldi ég mér vel. Ég hef alltaf haft gaman af líkamsrækt. Þá drekk ég sjaldan og hef aldrei notað fíkniefni. Það var bara ekki fyrir mig. Stundum fæ ég mér eitt kampavínsglas með vinum mínum. Það er allt og sumt. Eitt sinn fékk ég mér þrjú bellini-glös með vini mínum í fríi í Suður-Frakklandi og ég varð hauslaus. Ég þarf ekki mikið.“

View this post on Instagram

A post shared by Cher (@cher)

View this post on Instagram

A post shared by Cher (@cher)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál