Skuggalega mikill munur á förðun og án förðunar

Chrissy Teigen skipti andliti sínu upp í farðað og ófarðað.
Chrissy Teigen skipti andliti sínu upp í farðað og ófarðað. Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Chrissy Teigen sýnir aðdáendum sínum á Instagram hvernig hún lítur út með og án förðunar á einni og sömu myndinni. Teigen segist yfirleitt reyna að vera ómáluð en sama hvort hún sé máluð eða ekki þá lítur hún alltaf jafn vel út. 

Teigen hafði farðað annan helming andlitsins en hafði hinn án farða. „Enginn farði, farði,“ skrifaði hún við myndina en sá helmingur sem var með farða býr yfir örlítilli meiri dramatík en hinn ófarðaði. Dökk augnförðunin setur mikinn svip á heildarútlitið en það er einmitt það sem máttur förðunar býr yfir. Fréttamiðillinn People greindi frá.

Nýverið fór Teigen í hárígræðslu á augabrúnunum. Ein af fjölmörgum ástæðum þeirrar aðgerðar sagði Teigen vera svo hún þyrfti sjaldnar að fylla upp í brúnirnar með farða. Lítil hár aftan á hnakkasvæði Teigen voru fjarlægð og komið fyrir á nýjum stað á augabrúnum hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál