Besta gjöfin fyrir fatahönnuði framtíðarinnar

Að gefa saumavél í fermingargjöf hljómar eins og árið sé 1985 og allir í heimasaumuðum fötum. Staðreyndin er hins vegar sú að föt sem hönnuð eru og saumuð heima eru það heitasta í dag. Unga kynslóðin sem vex úr grasi á næstu árum er líka töluvert meðvitaðri um umhverfismál heldur en eldri kynslóðir og það er fátt umhverfisvænna en að nýta vel út úr fötunum sínum.

Þá er gott að eiga góða saumavél til að bæta það sem slitið er, búa til nýjar flíkur úr gömlum fötum, og aðlaga flíkur sem gjarnan eru keyptar notaðar á mörkuðum. Vélarnar frá sænska merkinu Husqvarna standast svo sannarlega væntingar og hafa gert það síðan 1872. Hjá Pfaff er að finna vélar á breiðu verðbili, allt frá 59.900 til 650.000.

Emerald 116 er sérstaklega auðveld í notkun. Góð og kraftmikil …
Emerald 116 er sérstaklega auðveld í notkun. Góð og kraftmikil vél sem ræður við allt frá þunnu silki upp í leður. Verð 59.900 kr. í Pfaff.
Husqvarna Opal 650. Glæsileg og nútímaleg saumavél með 20 cm …
Husqvarna Opal 650. Glæsileg og nútímaleg saumavél með 20 cm fríarmi sem hentar vel í stærri verkefni. Verð 114.900 kr. í Pfaff.
Husqvarna Brilliance 75Q. Flott saumavél með 25 cm fríarmi. Hentar …
Husqvarna Brilliance 75Q. Flott saumavél með 25 cm fríarmi. Hentar vel í bútasaum og fatasaum. Verð 239.900 kr. í Pfaff
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál