Klæddist Valentino í brúðkaupi ársins

Brooklyn Beckham og Nicola Peltz í september. Þau gengu í …
Brooklyn Beckham og Nicola Peltz í september. Þau gengu í hjónaband í Miami um helgina. AFP/ANGELA WEISS

Brooklyn Beckham kvæntist leikkonunni Nicolu Peltz um helgina. Öllu var tjaldað til á laugardaginn og klæddist Peltz einstaklega fallegum kjól frá ítalska hátískumerkinu Valentino að því fram kemur á vef Vogue. 

Mikill íburður var yfir brúðkaupinu. Brooklyn Beckham er sonur Davids og Victoriu Beckham en Peltz kemur af ríkari ættum þar sem faðir hennar er auðkýf­ingurinn Nel­son Peltz. Ungu hjónunum hefur verið lýst sem nútímakóngafólki. 

Tengdamóðir Peltz, Victoria Beckham, er fatahönnuður og á sitt eigið merki. Brúðurin kaus þó að klæðast Valentino í brúðkaupinu. Kjóllinn var hvítur og einfaldur með hlýrum. Hann var með löngum slóða og langt rómantískt slörið var lengra en slóðinn. Peltz var með hanska í stíl við slörið. 

Hér má sjá myndir úr brúðkaupinu sem fjölskyldan hefur birt á samfélagsmiðlum en myndirnar voru einnig birtar á vef Vogue. 

View this post on Instagram

A post shared by @brooklynbeckham



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál