Leit út eins og í hryllingsmynd eftir bótóx

Simon Cowell borðar hollt og drekkur vatn í dag.
Simon Cowell borðar hollt og drekkur vatn í dag. AFP

Hæfileikadómarinn Simon Cowell gekk of langt í fegrunaraðgerðum og segist nú alveg vera laus við bótox. Hann ákvað að hætta þegar sonur hans varð hræddur við hann. 

„Það var tímabil í lífi mínu þar sem ég gekk mögulega of langt. Ég sá „fyrir“ mynd af mér um daginn og þekkti ekki sjálfan mig,“ sagði Cowell í viðtali við The Sun

Cowell á soninn Eric sem varð átta ára fyrr á þessu ári. Sonur hans var ekki að fela tilfinningar sínar þegar Cowell gekk of langt í leit að æskunni. „Eric varð skíthræddur. Þá var komið nóg. Núna er ekkert fyllingarefni í líkamanum mínum. Ekkert.“

Stjarnan sagði að á tímabili hafi allir verið með mikið af fyllingarefnum í andlitinu. Hinn 62 ára gamla sjónvarpsstjarna hugsar öðruvísi um útlitið í dag. „Í dag snýst þetta mikið um hollt mataræði og að drekka mikið vatn,“ segir Cowell. Hann hefur grennst mikið að undanförnu og segist ekki hafa verið hraustari í mörg ár. 

Simon Cowell notaði of mikið af bótoxi á tímabili.
Simon Cowell notaði of mikið af bótoxi á tímabili. FRED PROUSER
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál