Lagar brjóstin í tilefni af bókaútgáfu

Lala Kent ætlar að fagna því að bókin hennar er …
Lala Kent ætlar að fagna því að bókin hennar er nú fáanleg sem kilja með því að láta laga á sér brjóstin. Skjáskot/Instagram

Vanderpump Rules stjarnan Lala Kent fagnar því nú að sjálfsævisaga hennar Give them Lala er komin út í kilju með því að láta laga á sér brjóstin. Stefnir hún að því að láta brjóst sín líta út eins og áður en hún eignaðist dóttur sína Ocean á síðasta ári. 

„Mig langar til að fagna. Ég ætla í aðgerð að láta laga brjóstin á mér á föstudaginn,“ sagði Kent í hlaðvarpsþættinum Behind the Velvet Rope sem David Yontef stýrir. 

Give Them Lala hefur átt góðu gengi að fagna frá útgáfu, en bókin kom út hinn 4. maí. 

„Ég mun þurfa að hvíla mig í einhvern tíma, en um leið og ég er orðin hress mun ég fara út með nýju brjóstin mín og fagna metsölubókinni minni,“ sagði Kent. Kent sagðist vilja gera brjóstin stinn, og jafnvel stækka þau örlítið.

„Mig hefur langað að láta laga þau í einhvern tíma núna, og síðan þegar ég var ólétt, Guð minn góður, þau voru svo stór og flott. Aðrar mæður sögðu mér að barnið myndi sjúga allt líf úr þeim,“ sagði Kent. 

Kent hefur hugsað um að láta laga á sér brjóstin …
Kent hefur hugsað um að láta laga á sér brjóstin í þó nokkurn tíma.

Kent, sem er nýverið einhleyp, bætti við að henni fyndist brjóstin sín vera sæt núna, en að þau væru öðruvísi heldur en áður. „Það hljómar kannski eins og ég sé að láta laga þau fyrir karlmenn, en ég er að gera þetta fyrir mig. Þau voru stór og ég elskaði þau,“ sagði Kent.

Raunveruleikastjarnan hafði áður látið laga á sér brjóstin, en tjáði sig um það í viðtali árið 2017. Hún var hins vegar ekki ánægð með aðgerðina og síður en svo ánægð með lækninn. „Ég hata hann að eilífu. Þegar einhver hrósar mér fyrir brjóstin og spyr til hvaða læknis ég hafi farið segi ég þeim að fara ekki til hans. Ég reyndi þúsund sinnum að höfða mál gegn honum, en enginn vildi hjálpa mér með málið mitt. Ég beið of lengi,“ sagði Kent þá.  

View this post on Instagram

A post shared by Give Them Lala (@lalakent)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál