Bleiki liturinn gerir allt vitlaust

Gigi Hadid, Sebastian Stan, Simone Ashley, Nicola Peltz Beckam og …
Gigi Hadid, Sebastian Stan, Simone Ashley, Nicola Peltz Beckam og Anok Yai velja öll bleika litinn.

Svo virðist vera sem að bleik alda ríði yfir tískuheiminn um þessar mundir. Á dögunum birti framleiðslufyrirtækið Warner Bros mynd af leikkonunni Margot Robbie í ofurbleikum Barbie-búning sem hefur vakið mikla athygli.

Leikkonan sat fyrir í bleikri Chevrolet bifreið sem er þekkt er fyrir að vera bílinn hennar Barbie. Robbie mun leika hina frægu dúkku í samnefndri kvikmynd sem kemur út á næsta ári. Leikarinn Ryan Gosling mun fara með hlutverk.  

Þessi bleiki litur sem Barbie hefur verið þekkt fyrir hefur fært sig ört upp á tískupallana. Liturinn er áberandi í haustlínum margra tískurisa um allan heim.

Leikonan Glenn Close á Met Gala
Leikonan Glenn Close á Met Gala AFP / Angela Weiss

Búast má því við að bleiki liturinn haldi áfram fram í tísku út veturinn. Færst hefur í aukana að heimsþekktar stjörnur klæðist bleikum fatnaði. Enda sást bleiki liturinn víða á Met Gala-hátíðinni sem fram fór á dögunum.

Kim Kardashian virðist hafa dálæti af litnum en hún hefur sést mikið í honum síðustu vikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál