Sonur Madonnu í Gucci-kjól

Madonna og sonur hennar skelltu sér út á lífið
Madonna og sonur hennar skelltu sér út á lífið Ljósmynd/instagram

David Banda, sonur söngkonunar Madonnu, vakti athygli á dögunum þegar hann fór út með móður sinni í kjól. Mæðginin fóru saman á boxbardaga á laugardaginn í New York. Madonna birti myndir af þeim á Instagram með fyrirsögninni „fjölskyldubardagakvöld“.

Madonna veit sitthvað um tísku og er greinilega búin að kenna 16 ára syni sínum. Madonna klæddist öllu svörtu og var með mörg hálsmen, svarta leðurhanska og hvít sólgleraugu. Sonur hennar var í þröngum rauðum kjól úr Addidas x Gucci-línunni, hann var í svörtum sokkum í strigaskóm og með gyllt sólgleraugu.

Madonna er stolt af sjálfstrausti sonarins og hefur tjáð sig um það á myndum sem hún birtir á Instagram. Madonna á sex börn; Lourdes Leon, Rocco Ritchie, Mercy James, David Banda og tvíburastelpurnar Stellu og Estere.

View this post on Instagram

A post shared by Madonna (@madonna)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál