Skemmdi Kim kjólinn?

AFP

Það fór líklega ekki fram hjá neinum þegar raunveruleikastjarnan Kim Kardashian klæddist sögufrægum kjól Marilyn Monroe á Met Gala-hátíðinni. Monroe klæddist kjólnum árið 1962 þegar hún söng afmælissönginn fyrir þáverandi forseta Bandaríkjanna. 

Kim sætti mikilli gagnrýni fyrir að tala opinskátt um óheilbrigt þyngdartap til að komast í kjólinn. Rennilásinn aftan á kjólnum renndist hins vegar ekki upp og klæddist hún því hvítum pelsi sem faldi opna rennilásinn. 

Nú hafa verið birtar myndir af kjólnum og virðist vera sem nokkrar skemmdir hafi orðið á kjólnum, þá aðallega í kringum rennilásinn að aftanverðu. Á myndinni má sjá að nokkra kristalla vantar og efnið virðist hafa teygst. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál