Morgunblaðið með óvænt hlutverk í Love Island

Húðflúr Luca Bish minnir óneitanlega á Morgunblaðs m-ið.
Húðflúr Luca Bish minnir óneitanlega á Morgunblaðs m-ið. Samsett mynd

Morgunblaðið virðist eiga dyggan aðdáanda í hópi þátttakenda raunveruleikaþáttarins Love Island, en þar hafa glöggir áhorfendur séð Luca Bish skarta húðflúri sem líkist óneitanlega Morgunblaðs m-inu. 

View this post on Instagram

A post shared by Luca Bish (@lucabish)

Húðflúr Bish hafa verið á milli tannanna á fólki, en hann skartar mörgum misstórum húðflúrum á víð og dreif um líkamann sem minna helst á húðflúr tónlistarmannsins Harry Styles.

View this post on Instagram

A post shared by @harrystyles

Bish ræddi um húðflúrin við Radio Times, en hann sagði mörg þeirra hafa enga merkingu. „Fyrrverandi kærastan mín var húðflúrari svo ég var hálfgerð litabók fyrir hana,“ sagði hann. Bish gaf enga skýringu á m-húðflúrinu né af hverju hann væri með það.

M-húðflúrið hefur vakið sérstaka athygli meðal íslenskra aðdáenda Love Island í Facebook hópnum Bachelor Beibs, en þar ræða aðdáendur meðal annars um framgang Love Island og var nýlega tekin umræða um húðflúrið á síðunni.

Þó svo við Íslendingar tengjum m-ið helst við Morgunblaðið vilja breskir Love Island-aðdáendur meina að m-ið komi frá breska fréttamiðlinum Daily Mail, en það er þó ómögulegt að segja til um það. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál