Ísadóra Bjarkardóttir situr fyrir hjá Miu Miu

Fyrirsætan og leikarinn Ísadóra Bjarkardóttir situr fyrir nýja haustlínu tískuhússins …
Fyrirsætan og leikarinn Ísadóra Bjarkardóttir situr fyrir nýja haustlínu tískuhússins Miu Miu. Skjáskot/Instagram

Ísadóra Bjarkardóttir, dóttir tónlistarkonunnar Bjarkar Guðmundsdóttur og leikstjórans Matthew Barney, hefur verið að gera það gott í fyrirsætuheiminum en hún sat nýlega fyrir í auglýsingaherferð fyrir haustlínu tískuhússins Miu Miu.

Hún gengur til liðs við stórstjörnur á borð við Emily Ratajkowski, Sydney Sweeney og Emma Corrin sem hafa einnig setið fyrir vörumerkið. Ísadóra er fædd 3. október árið 2002 og því aðeins 19 árs gömul.

Á myndunum er Ísadóra með nýja skartgripalínu Miu Miu sem er hönnuð af Nathalie Djurberg og Hans Berg. Í línunni er að finna litríka skartgripi sem sækja innblástur í blóm og pillur. 

„Ljósmyndin er tekin af Julien Martinez Leclerc og kynnir leikarann Ísadóru Bjarkardóttur fyrir alheiminum,“ segir í fréttatilkynningu tískuhússins. Það hefur verið nóg að gera hjá Ísadóru á árinu, en hún lék nýlega frumraun sína í kvikmyndinni The Northman. Í kvikmyndinni fara ásamt Ísadóru móðir hennar, Björk, Nicole Kidman og Alexander Skarsgård með hlutverk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál