Úlpan sem Bergþóra hannaði 2006 fær nýtt útlit

Fatahönnuðurinn Bergþóra Guðnadóttir var með gömlu góðu Millet-úlpuna í huga þegar hún hannaði úlpuna Þórsmörk fyrir íslenska útivistarmerkið 66°Norður. Bergþóra starfaði á þeim tíma fyrir útivistarfyrirtækið en í dag rekur hún sitt eigið hönnunarfyrirtæki, Farmers Market. Þetta var árið 2006 og það sem engum óraði fyrir var að úlpan yrði jafnvinsæl og hún varð. Nú er búið að endurhanna úlpuna og færa hana til nútímans.  

„Þegar ég var að alast upp á níunda áratugnum voru bókstaflega allir í frönsku Millet dúnúlpunum. Maður grenjaði svona úlpu út í jólagjöf, jafnvel tvö ár í röð því þetta voru alls ekki ódýrar flíkur. En þrátt fyrir allt þá var þetta ekkert rosalega praktísk úlpa fyrir íslenskan vetur sem er iðulega svo umhleypingasamur. Ég man eftir að hafa verið labbandi heim í Árbænum í algjöru úrhelli. Úlpan varð gegnblaut þannig að dúnninn varð að einni klessu og missti alla einangrun. Svo kom frost og þá varð flíkin að níðþungri klakabrynju,“ segir Bergþóra.

Svona leit ein fyrsta útgáfan af Þórsmerkur úlpunni út þegar …
Svona leit ein fyrsta útgáfan af Þórsmerkur úlpunni út þegar hún kom á markað 2006. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Hún segist hafa fengið frjálsar hendur þegar hún var beðin um hanna úlpuna. 

„Í upphafi aldarinnar fékk ég mjög frjálsar hendur með ákveðið konsept sem við kölluðum „Icelandic Living.“ Þetta voru flíkur eins og Vindur, Kaldi og Bragi; föt sem voru kannski svolítið þjóðlegri, til dæmis vísunin í lopapeysumynstrið sem er á Kalda. Það var og er mjög mikil samkeppni í útivistarfatnaði og við vildum með þessum flíkum endurspegla sérstöðu okkar sem íslensks fyrirtækis og miðla ákveðinni leikgleði í hönnuninni.“

Hún segir að þegar sú hugmynd kom upp að gera Þórsmörk þá yrði það dúnúlpa sem væri sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður.

„Hún var með algjörlega vatnshelt ytra byrði og með límdum vatnsheldum saumum en hefðbundin einangrandi dúnúlpa að innan. Ég sótti líka innblástur til fornra stakka og anorakka Norðurslóða. Ef maður skoðar til að mynda gamla búninga frá inúítum Grænlands og Kanada þá eru þetta gjarnan síðir stakkar með stórar hettur og loðkraga kringum andlitið, eins og á Þórsmörk.

Það var alls ekki víst að þessi flík myndi ná neinni fótfestu, sérstaklega erlendis, svo það er frábært að hún hafi slegið svona í gegn og gaman að sjá fólk klæðast henni enn þann dag í dag. 66°Norður hefur lagt mikla áherslu á endingargóðar flíkur í ljósi sjálfbærni og Þórsmörk er gott dæmi um hvað sú nálgun getur heppnast vel,“ segir hún. 

Hér er Þórsmörk úlpan í nýjum búningi.
Hér er Þórsmörk úlpan í nýjum búningi.
Í staðinn fyrir loðfeldinn á hettunni er dúnkragi.
Í staðinn fyrir loðfeldinn á hettunni er dúnkragi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál