Hildur og Sanna hagræða í bleiku

Hildur Björnsdóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir voru í bleiku í …
Hildur Björnsdóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir voru í bleiku í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokks í borginni, völdu báðar bleik föt þegar þær gíruðu sig upp fyrir hagræðingu í rekstri borgarinnar í gær. 

Hildur klæddist ákaflega fallegri bleikri buxnadragt með loði á ermunum. Dragtin fæst í Zöru og kostar jakkinn 21.995 krónur. Lítið er þó eftir af bleika jakkanum, en til er eins jakki í grænu. Við bleiku dragtina var hún í svartri skyrtu. 

Sanna var líka í bleiku. Var þar mest áberandi fagurbleikur trefill sem kemur að góðum notum í frostinu sem verið hefur í Reykjavík undanfarna daga. 

Dragtin hennar Hildar er úr Zöru.
Dragtin hennar Hildar er úr Zöru. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Líf Magneudóttir mætti líka með bleika húfu á fund borgarstjórnar …
Líf Magneudóttir mætti líka með bleika húfu á fund borgarstjórnar í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál