Albert og Lóa opna Gina Tricot-verslun á Íslandi

Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir munu opna Gina …
Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir munu opna Gina Tricot-verslun á Íslandi í mars. Ljósmynd/Samsett

Sænska tískufatakeðjan Gina Tricot opnar nýjar verslanir á Íslandi á þessu ári í gegnum umboðssamning. Um er að ræða eina af stæstu tískufatakeðjum Svíþjóðar en fyrirtækið rekur 150 verslanir í fjórum löndum ásamt netverslun sem sendir víða um Evrópu. Lóa D. Kristjánsdóttir og Albert Þór Magnússon, eigendur Lindex á Íslandi, reka verslunina hérlendis.

„Þegar tækifæri bauðst að gefa Íslendingum möguleika á að upplifa tískuvörumerkið Gina Tricot urðum við strax áhugasöm og hefur það verið sérlega ánægjulegt að undirbúa komu Gina Tricot til Íslands. Við erum full tilhlökkunar til framtíðarinnar hér á Íslandi,“ segir Lóa Dagbjört.

Endurnýta og hanna eldri flíkur

Hluti vörulínu Gina Tricot hefur verið aðgengileg í gegnum vefsíðu noomi.is síðan 2019 en með samningi við eigendur tekur umboðssamningur við sem tryggir að vörumerki Gina Tricot verður nú að fullu gerð skil með netverslun sem opnar um miðjan mars og verslun sem opnar síðar á árinu með heildarvörulínu Gina Tricot.

Gina Tricot leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og að vera virkur þátttakandi í að skapa sjálfbærari tískuiðnað. Til dæmis með því að endurnýta og hanna eldri flíkur í samstarfi við hönnuði úr hönnunarháskólanum í Borås undir merkjum „remake-design“ auk þess að kynna línur sem byggja á að endurnýta flíkur og efni og þannig byggja undir hringrásariðnað. Gina Tricot er einnig samstarfsaðili samtaka eins og UN Women, UNICEF og Alheimssjóð fyrir náttúruna (World Wildlife fund for nature) ásamt því að framleiða vörur undir vottunum svansmerkisins (e. The Nordic Swan Ecolabel) og GOTS (e. Global Organic Textile Standard) sem tryggir notkun 100% lífrænnar bómullar. 

Skandinavísk hönnun

Árið 2019 innleiddi Gina Tricot RENT með farsælum hætti í ákveðnum verslunum þar sem viðskiptavinir gátu leigt sína uppáhaldsflík fyrir veisluna eða stórt tilefni en með því móti undirstrikar Gina Tricot mikilvægi þess að „loka hringnum“ og hámarka noktun flíkna og endurnýtingu samhliða því að fyrirbyggja sóun sem er hluti af sjálfbærnisstefnu fyrirtækisins.

„Við erum stöðugt að leitast við að bæta okkur og verða betri með sjálfbærum hætti. Uppbygging Gina Tricot hefur leitt  til þess að nú er Ísland að bætast við sem fyrir okkur er afar spennnandi. Í samvinnu við okkar umboðsaðila erum við himinlifandi að opna dyr Gina Tricot fyrir okkar viðskiptavini á Íslandi,“ segir Ted Boman, forstjóri Gina Tricot AB.

Einkenni Gina Tricot er skandinavísk hönnun sem miðar að því að veita konum innblástur frá trendum helstu tískuborga heims. Í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Borås, þar sem starfa um 200 manns, eru fjöldi hönnuða sem hafa frá upphafi unnið að því að skapa  flíkur fyrir konur sem hafa áhuga á tísku, hvort sem er hversdags eða spari. Fyrirtækið hefur fengið í samstarf við sig þekkta tískufrömuði eins og Bianca Ingrosso og Hanna MW.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál