Svavar Örn passar upp á hárið á Halldóri Benjamín

Svavar Örn Svavarsson hárgreiðslumeistari klippti hárið á Halldóri Benjamín í …
Svavar Örn Svavarsson hárgreiðslumeistari klippti hárið á Halldóri Benjamín í dag. Myndin hægra megin var tekin í gær. Ljósmynd/Samsett

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er vel hærður eins og landsmenn Smartlands hafa komið auga á. Þrátt fyrir hárprýði fer hann reglulega í klippingu. Í dag heimsótti hann Svavar Örn Svavarsson hárgreiðslumeistara á Senter sem fór mjúkum höndum um lokkana. 

„Mér finnst hann með mjög fallegt hár. Af hverju þurfa allir að vera eins og möppudýr með eins klippingu? Mér finnst hann geggjaður svona,“ segir Svavar Örn þegar haft var samband við hann rétt í þessu. 

Svavar Örn hefur séð um hárið á Halldóri Benjamín um nokkurt skeið og segist bara rétt snyrta á honum hárið. Hann bendir á að Halldór Benjamín sé með fallegt hár og það megi alls ekki klippa hann of mikið. 

„Ég vil alls ekki að allir séu eins. Mér finnst gaman þegar fólk mætir með smá hár. Það er eins og fólk þurfi alltaf að fá svakalega mikið fyrir peninginn þegar það fer í klippingu. Það er miklu betra að mæta oftar og láta taka minna af því,“ segir Svavar Örn. 

Er Halldór Benjamín með einhver efni í hárinu?

„Já, hann er með efni í hárinu en við erum kannski aðeins að þróa okkur í þessu. Við erum að finna aðeins út úr þessu. Hann er ekki mikið að pæla í þessu,“ segir Svavar Örn og hlær og bætir við: 

„Ég klippti hann ekki mikið. Ég var aðallega að snyrta hann,“ segir Svavar Örn. 

Svavar Örn segir að það þurfi ekki allir að vera …
Svavar Örn segir að það þurfi ekki allir að vera eins og möppudýr um hárið. Ljósmynd/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál