Hefur farið í fitusog og bótox

Leikkonan Julia Fox viðurkennir að hún hefur farið í fitusog …
Leikkonan Julia Fox viðurkennir að hún hefur farið í fitusog og bótox. AFP/Andrea Renault

Fox, sem nýlega lét hafa það eftir sér að sér þætti sjúklega heitt að eldast, hefur viðurkennt að hún hafi farið í fitsog og fengið sér fylliefni. 

„Ég er farin að síga, hlutirnir eru ekki eins og þeir voru einu sinni,“ sagði hún í viðtali við tímaritið Elle sem birtist í dag. 

„Ég ætla ekki að gera neitt í því,“ bætti hún enn fremur við. Síðar lét hún bæta því við viðtalið að hún hefði þó reyndar farið í bótox og einu sinni í fitusog. Hún útilokaði ekki heldur að fara aftur í svoleiðis fegrunarmeðferðir. 

Stangast þetta á við ummæli hennar á TikTok fyrir ekki svo löngu þegar hún talaði um að hún væri farin að eldast. Fox er 33 ára og hvað þekktust fyrir að hafa átt í stuttu sambandi við tónlistarmanninn Kanye West. 

„Bara svo þið vitið, ég er farin að eldast. Sko í alvöru eldast,“ sagði hún án farða í myndbandinu. Hún lýsti einnig skoðunum sínum á kremum sem eiga að koma í veg fyrir öldrun húðarinnar. 

„Ef ég sé enn eina vöruna sem á að koma í veg fyrir öldrun, þá fer ég í mál. Ég ætla að fara í mál,“ sagði Fox. 

@juliafox Ooooo I know this is gonna make the broke boys mad #OLDISIN ♬ original sound - Julia fox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál